Alexander Veigar með stórleik í stórsigri Grindavíkur | Úrslitin í Inkasso Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2016 21:21
Grindvíkingar eru í góðum málum í Inkasso-deildinni eftir flottan útisigur á Ásvöllum í kvöld, Keflvíkingar unnu endurkomusigur á HK og Huginn vann Austfjarðaslaginn á sigurmarki rétt fyrir leikslok.Eyþór Árnason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum á Ásvöllum í kvöld og náði þessum myndum hér fyrir ofan. Grindavík vann 4-0 sigur á Haukum á Ásvöllum þar sem Alexander Veigar Þórarinsson átti stórleik. Alexander Veigar skoraði tvö mörk sjálfur og lagði síðan upp hin tvö. Einar Orri Einarsson afgreiddi HK með því að skora tvö síðustu mörk leiksins í 3-2 heimasigri Keflvíkinga á HK. Hákon Ingi Jónsson skoraði tvö mörk á fyrstu átján mínútunum og kom HK tvisvar yfir. Einar Orri jafnaði metin á 68. mínútu og skoraði síðan sigurmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok. Stefán Ómar Magnússon tryggði Huginn 1-0 sigur á Fjarðabyggð í Austfjarðarslagnum þegar hann skoraði eina mark leiksins fjórum mínútum fyrir leikslok. Grindavíkurliðið er í öðru sæti deildarinnar með þremur stigum meira en Keflavík sem er komið upp í þriðja sætið. Huginn komst upp úr neðsta sætinu með sigrinum í kvöld.Úrslit og markaskorarar úr 1. deild karla í kvöldHuginn - Fjarðabyggð 1-0 1-0 Stefán Ómar Magnússon (86.).Haukar - Grindavík 0-4 0-1 Alexander Veigar Þórarinsson (3.), 0-2 Juan Manuel Ortiz Jimenez (17.), 0-3 Andri Rúnar Bjarnason (46.), 0-4 Alexander Veigar Þórarinsson (64.).Keflavík - HK 3-2 0-1 Hákon Ingi Jónsson (2.), 1-1 Magnús Þórir Matthíasson (13.), 1-2 Hákon Ingi Jónsson (18.), 2-2 Einar Orri Einarsson (68.), 3-2 Einar Orri Einarsson (88.). Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá fótbolti.net og úrslit.net.Alexander Veigar Þórarinsson var frábær í kvöld.Vísir/Eyþór
Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira