Staðan hefur mikið breyst hjá liðum Leiknis R. og Þórs á síðustu vikum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2016 19:54 Kolbeinn Kárason fagnar marki. Vísir/Valli
Kolbeinn Kárason tryggði Leikni Reykjavík 2-1 útisigur á Þór á Akureyri í kvöld þegar liðin mættust í tólftu umferð Inkasso deildar karla á Þórsvellinum. Kolbeinn Kárason skoraði sigurmarkið á 74. mínútu leiksins eða aðeins þremur mínútum eftir að Gunnar Örvar Stefánsson hafði jafnað fyrir Þór. Fannar Þór Arnarsson kom Leikni í 1-0 á 38. mínútu og þannig var staðan í 36 mínútur. Kolbeinn Kárason tryggði Leiknisliðinu einnig sigur á Leikni F. fyrir tíu dögum síðan og er því að skora mikilvæg mörk fyrir liðið í sumar. Gengi Leiknisliðsins hefur annaðhvort verið í ökkla eða eyra í sumar enda hefur liðið skipts á að eiga mjög góðar vikur og mjög slæmar vikur. Eftir góða byrjun á mótinu lenti Leiknisliðið þannig í basli í júnímánuði þegar liðið tapaði fjórum leikjum í röð en Kristján Guðmundsson, þjálfari Leiknisliðsins, er heldur betur búinn að koma sínum mönnum aftur í gang. Leiknismenn hafa nú náð í 13 stig af 15 mögulegum út úr síðustu fimm leikjum og Breiðhyltingar eru núna aðeins einu stigi á eftir Grindavík sem situr í öðru sætinu. Þórsarar voru í fínum málum við toppinn fyrir fjórum leikjum. Fjögur töp í röð þýða það hinsvegar að liðið er dottið niður í fimmta sætið og er nú fimm stigum frá sæti sem gefur farseðil upp í Pepsi-deildina.
Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira