Cara Delevingne ýtir undir orðróm um trúlofun Ritstjórn skrifar 27. júlí 2016 17:00 Cara og St. Vincent eru einstaklega glæsilegt par sem er vonandi á leiðinni að altarinu á næstunni. Mynd/Getty
Sögusagnir þess efnis að Cara Delevigne væri trúlofuð söngkonunni St. Vincent hafa verið á sveimi frá því í febrúar á þessu ári. Þá sást til Cara biðja kærustu sinnar í Eiffel turninum í París. Samkvæmt vitnum skellti hún sér á skeljarnar á efstu hæð turnsins eins og þykir afar klassískt og rómantískt að gera. Í fyrradag birti leikarinn Jared Leto, sem fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Suicide Squat ásamt Cara, mynd af henni þar sem stór demantshringur á baugfingri sást greinilega. Nú vilja fjölmiðlar vestanhafs meina að það sé endanlega staðfest að Cara og St. Vincent séu trúlofaðar. Ef að sögusagnirnar eru sannar þá er það ekkert annað en góðs viti og þá er hægt að bíða spenntur eftir brúðkaupinu, sem verður án efa hið glæsilegasta. @caradelevingne A photo posted by JARED LETO (@jaredleto) on Jul 25, 2016 at 9:16am PDT
Mest lesið Hlutverk Mr. Big í Sex and The City var upphaflega ætlað öðrum leikara Glamour Proenza Schouler sýndi í New York í seinasta skiptið Glamour Átta flottustu dressin frá Yeezy Season 5 Glamour Smekklegir gestir hjá Stellu Glamour Kristen Stewart rakaði af sér hárið Glamour Táknrænn skartgripur á rauða dreglinum Glamour Skot á umdeildustu förðunartísku síðasta árs? Glamour Eru konur að fresta barneignum of lengi? Glamour Fjólublár er litur ársins 2018 Glamour Heitasta flík ársins? Glamour