Haukar spila báða leikina í Grikklandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júlí 2016 10:00
Karlalið Hauka í handbolta hefur verið fastagestir í Evrópukeppnum á þessari öld og það verður engin breyting þar á í ár. Líkt og í fyrra taka Haukar þátt í EHF-bikarnum en þeir mæta A.C. Diomidis Argous frá Grikklandi í 1. umferð forkeppninnar. „Það hefur alltaf verið mikil áhersla á að taka þátt í Evrópukeppninni og þetta er stór þáttur í okkar starfi,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Íslandsmeistara Hauka, í samtali við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þátttaka í Evrópukeppnum er kostnaðarsöm en Haukar láta það ekki á sig fá. „Það er samstillt átak í klúbbnum, hjá leikmönnum, sjálfboðaliðum og stjórn, að hjálpast að við að fjármagna þetta. Það er dýrt að taka þátt en við erum alltaf tilbúnir að leggja þetta á okkur,“ sagði Gunnar tók við Haukum fyrir síðasta tímabil. Haukar munu spila báða leikina gegn Diomidis Argous á útivelli. „Það er frekar dýr pakki að fara til Grikklands. Við teljum okkur geta farið áfram með því að spila báða leikina úti. Við gerðum þetta líka í fyrra,“ sagði Gunnar. „Við ætlum okkur að klára þetta og ef við gerum það fáum við mjög spennandi verkefni, Alingsas frá Svíþjóð.“ Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Olís-deild karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Hagræddi sannleikanum um heilsu Mortensen fyrir leik“ Sport Fleiri fréttir Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Sjá meira