Aftur tapaði Þór fyrir Suðurnesjaliði Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. júlí 2016 19:53 Hörður Sveinsson skoraði sigurmarkið í kvöld. vísir/stefán
Keflavík vann annan leikinn sinn í röð í Inkasso-deild karla í fótbolta í kvöld þegar liðið lagði Þór á Akureyri, 2-1. Keflavík var fyrir þessa tveggja leikja sigurhrinu án sigurs í fjórum leikjum á undan því en liðið var að gera of mikið af jafnteflum. Sigurbergur Elísson skoraði fyrra mark Keflavíkur á sjöundu mínútu en þetta er sjöunda markið hans í sumar. Sigurbergur hefur verið einn albesti leikmaður Inkasso-deildarinnar í sumar en hann lagði upp fyrra mark Keflavíkur í sigrinum gegn Leikni F. í síðustu umferð. Þar lagði Sigurbergur upp á Magnús Þóri Matthíasson sem launaði honum greiðan í byrjun leiks í dag. Hörður Sveinsson kom Keflavík svo í 2-0 á 29. mínútu og þannig stóð þar til Gunnar Örvar Stefánsson minnkaið muninn í 2-1 á 76. mínútu leiksins fyrir Þór. Gestirnir héldu út og unnu mjög sterkan sigur á erfiðum útivelli en Þórsarar voru fyrir leikinn í öðru sæti deildarinnar og gætu reyndar haldið öðru sætinu. Það fer eftir úrslitunum í leik KA og Grindavíkur. Þórsarar voru búnir að vinna fimm leiki í röð í deildinni áður en liðið fékk svakalegan 5-0 skell gegn Grindavík í síðustu umferð á útivelli og nú aðra umferðina í röð tapa norðanmenn gegn Suðurnesjaliði. Keflavík er nú með 17 stig eftir tíu umferðir líkt og Grindavík sem er að keppa þessa stundina en Þór er með 19 stig og búið að hleypa Suðurnesjaliðunum inn í toppbaráttuna.Upplýsingar um markaskorara fengnar frá úrslit.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira