Titlinum stelur hún af fyrrverandi kærasta sínum, Justin Bieber, sem hafði deilt mynd af honum og Selenu að kyssast. Sú mynd gerði allt vitlaust og varð fljótt mest líkaða myndin en í dag eru 3.7 milljón manns búnir að líka við hana svo að Selena hefur heldur betur tekið fram úr honum.
Selena er einnig með flesta fylgjendur á Instagram, eða 89.5 milljónir. Það er því óhætt að segja að hún sé hin eina sanna drottning Instagram og það verður erfitt að stela þeinm titli af henni.