
Lars: Í dag er þessi tilfinning sú besta á ferlinum

Nú ef strákarnir okkar tapa verður þetta síðasti leikur Lars Lagerbäck sem landsliðsþjálfari Íslands en hann hefur þjálfað liðið frá 2011 og samhliða Heimi Hallgrímssyni síðan 2014.
Á blaðamannafundi íslenska liðsins á Stade de France í Saint-Denis í gær var Lars spurður út í þessa tilhugsun og hvernig honum liði með þetta.
„Ég veit ekki hvort þetta sé minn síðasti leikur með íslenska liðið. Ég hætti að þjálfa Ísland eftir mótið, svo mikið er víst enda er kominn tími á mig,“ sagði Lars sem var einnig spurður hver væri hans besta minning frá ferlinum.
„Ég er nú ekki alveg hættur í fótbolta þó ég sé að hætta að þjálfa Ísland. Það er erfitt að svara þessu. Það er alltaf góð reynsla að fara með lið á stórmót,“ sagði hann.
„Mér líður virkilega vel núna og það er gaman að hafa upplifað þetta mót með þessu liði og verða vitni að því sem strákarnir hafa afrekað. Það voru þeir sem komust hingað og þeir geta komist áfram í 16 liða úrslitin. Í dag er þessi tilfinning sú besta á ferlinum,“ sagði Lars Lagerbäck.
Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Tengdar fréttir

Heimir: Þó menn væru tæpir vegna meiðsla myndu þeir ekki segja frá því
Landsliðsþjálfarinn segir íslenska liðið eiga eftir að spila góða leikinn sinn á Evrópumótinu.

Arnór Þór: Ég var smeykur um Aron Einar
Arnór Þór Gunnarsson viðurkennir að hann hafi óttast um þátttöku bróður síns í fyrsta leik Íslands á EM vegna meiðsla.

Enginn tilbúinn að kveðja EM í dag
Íslenska landsliðið mætir Austurríki á Stade de France í lokaleik liðsins í París í dag. Nái strákarnir okkar ekki góðum úrslitum kveðja þeir Frakkland og það sem meira er, þetta yrði síðasti leikur Lars Lagerbäck.

Þetta er barinn sem Íslendingar ætla að hittast á í París í dag
Ætla að hittast á tólfta tímanum og leggja af stað á völlinn klukkan 15.

EM dagbók: Sjáumst á fimmtudag!
Starfsfólkið á hóteli okkar fjölmiðlamanna í Annecy er yndislegt. Þetta er fremur lítið hótel sem er þekktara fyrir veitingastaðinn sinn en sjálfa hótelstarfsemina. Stjarna matseðilsins er lasanja "hennar mömmu“ eins og rétturinn er auglýstur.

Hannes Þór: Svo gaman að helst vil ég fara alla leið
Markverði íslenska liðsins finnst svo gaman á Evrópumótinu að helst vill hann komast alla leið í úrslitaleikinn svo fjörið hætti ekki.

Aron: Okkur hefur dreymt um þetta síðan við vorum ungir drengir
Strákarnir okkar þurfa jafntefli gegn Austurríki í dag til að komast í 16 liða úrslit EM.