
Kári gæti fengið tilboð frá Englandi

Kári hefur verið sterkur í hjarta íslensku varnarinnar, auk þess sem hann hefur lagt upp tvö mörk.
Kári leikur með Malmö í Svíþjóð en þjálfari liðsins, Allan Kuhn, segir að stærri lið í Evrópu muni eflaust sýna honum áhuga í kjölfar frammistöðunnar á EM.
„Það getur vel verið að hann fái tilboð frá liðum á Englandi,“ sagði Kuhn í samtali við Sydsvenskan.
„Ég get ekki haft áhyggjur af mínu starfi, ég hugsa ekki þannig. Ég samgleðst Kára. Hann kemur væntanlega fullur sjálfstrausts aftur til okkar,“ bætti Kuhn við. Hann segir að Kári og félagar í íslenska landsliðinu geti komið á óvart gegn Frökkum á sunnudaginn.
„Ég held að Ísland eigi fína möguleika í næsta leik, það getur enginn sagt að sigurinn á Englandi hafi ekki verið sanngjarn,“ sagði Kuhn.
Viðar Örn Kjartansson, samherji Kára hjá Malmö, sér það alveg gerast að Kári fari aftur til Englands, þar sem hann lék áður með Plymouth og Rotherham United.
„Við höfum talað um það í klefanum. Af hverju ekki? Hann er 33 ára en maður veit aldrei hvað gerist. Miðað við frammistöðu hans á EM á hann skilið að spila í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Viðar sem er næstmarkahæstur í sænsku deildinni með átta mörk.
Tengdar fréttir

EM-dagbók: Ekkert vandræðalegt við tapið í Nice
Síðan flautað var til leiksloka á Stade de Nice í fyrrakvöld og frækinn sigur strákanna okkar á Englendingum var staðreynd hafa enskir fjölmiðlar keppst við að gera lítið úr eigin landsliði.

Upplifðu stemninguna í stúkunni þegar Kolbeinn skoraði í 360 gráðum | Myndband
Nú geturðu upplifað það sem Íslendingarnir á Allianz Riviera-vellinum upplifðu í sigrinum á Englandi.

„Mjög snjallt hjá Kolbeini“
„Það eru allir heilir og mjög glaðir,“ segir Heimir Hallgrímsson um stöðuna á hópnum.

„Íslenska liðið hefur unnið hjörtu allra í Danmörku“
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur unnið hug og hjörtu Dana. Þeir trúa því að okkar menn geti leikið eftir afrek Dana sem urðu óvænt Evrópumeistarar árið 1992.

Heimir: Veltum því ekki fyrir okkur hvað skrifað er í fjölmiðlum
Heimir Hallgrímsson segir að velgengni Íslands á EM muni hafa áhrif á íslenska knattspyrnu í heild sinni.

Sjáðu blaðamannafund Heimis og Lars í heild sinni | Myndband
Þjálfararnir sátu fyrir svörum á blaðamannafundi en næsta verkefni Íslands er leikur gegn Frakklandi í átta liða úrslitum.

Heimir: Við viljum enda eins og Leicester
Heimir Hallgrímsson segir að hann vilji að EM-ævintýri íslenska landsliðsins fái sama farsæla endi og saga Leicester í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Draumasóknin sem sendi Englendinga heim af EM
Óánægðir Bretar buðu upp á Brexit 1.0 en aðeins nokkrum dögum síðar bjó súpersókn íslenska fóboltalandsliðsins til Brexit 2.0 og sendi súra Englendinga enn einu sinni snemma heim af stórmóti í fótbolta.

Dómarinn í leik Íslands og Englands fær leik í 8 liða úrslitunum
Damir Skomina, sem dæmdi leik Íslands og England í sextán liða úrslitunum, hefur fengið leik í átta liða úrslitunum.

„Þreyttur á þessari spurningu“
Heimir Hallgrímsson þarf að svar sömu spurningunni aftur og aftur því lengra sem íslenska liðið nær á EM.

Fréttakona Fox um 99,8 prósent áhorf: "Hvað voru hin 0,2 prósentin að gera?“
Fjallað var um sigur Íslands á Fox og í þætti einnar virtustu fréttakonu heims.

Leikmenn skammaðir fyrir að mæta of seint í kvöldmat
Lars Lagerbäck segir að eitt það besta sem hægt er að gera er að efast um að hugarfar leikmanna sé rétt. Þjálfararnir minntu á sig í gær.

Mamma Jóa Berg: Tilvonandi tengdasonur fékk ekkert að borða útaf leiknum í Bern
Jóhann Berg Guðmundsson steig sín fyrstu skref í fótbolta í appelsínugulum búningi Fylkis.

EM í dag: Lars er maðurinn fyrir England og hvíldardagur í Annecy
Allir eru mættir "heim“ til Annecy.

Hannes: Ég er stoltur Halldórsson
Hún var eftirminnileg stundin þegar Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, fór og faðmaði föður sinn í stúkunni á Allianz Riviera leikvanginum í Nice eftir á Íslandi hafði unnið England í sextán liða úrslitunum á EM í Frakklandi.

Strákarnir okkar æfðu í gær en fá hvíld í dag
Voru komnir til Annecy um klukkan fjögur í fyrrinótt.

Stóraukinn áhugi fjölmiðla á strákunum okkar eftir sigurinn á Englandi
Þröngt máttu sáttir sitja á blaðamannafundi Lars og Heimis í Annecy í dag.

Lars ætlar ekki að taka við enska landsliðinu
Lars Lagerbäck ætlar að starfa áfram við fótbolta en mun ekki bjarga Englendingum þó krafta hans verið óskað.

Lars: Svipað ástand á Íslandi og 1994 í Svíþjóð
Svíar lönduðu bronsi í Bandaríkjunum 1994.

Heimir varar Ólympíumeistara við að synda í kringum Ísland ef Frakkland tapar
Franskur sundkappi er heldur betur búinn að lofa upp í ermina á sér.

Heimir: Enginn af þeim sem spiluðu Englandsleikinn þarf að kaupa bjór á barnum á Íslandi
"Þeir sem spiluðu þann leik verða hetjur í huga fólks það sem eftir er,“ segir Heimir Hallgrímsson.

Liverpool, Tottenham og Leicester sögð vilja fá Ragga Sig
Ragnar Sigurðsson gæti spilað í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en hann er eftirsóttur eftir frammistöðuna á EM.

Lars: Ekkert internet og bara nokkrir farsímar
Sænsku leikmennirnir á HM 1994 voru ekki jafn meðvitaðir um fárið heima fyrir og strákarnir okkar á EM 2016.