Lewis Hamilton, á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir kanadíska kappaksturinn. Felipe Massa lenti harkalega á varnarvegg í fyrstu beygju á fyrri æfingunni.
Fyrri æfingin
Nico Rosberg á Mercedes varð annar, Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji. Vettel naut góðs af uppfærðri forþjöppu í Ferrari bílnum. Hann var þrátt fyrir það næstum hálfri sekúndu á eftir Hamilton.
Massa missti stjórn á bíl sínum á æfingunni. Hann snérist og endaði á því að rúlla aftur á bak á varnarvegg. Æfingin var stöðvuð á meðan Williams bíll Brasilíumannsins var fjarlægður.
Max Verstappen var fjórði á Red Bull, liðsfélagi hans, Daniel Ricciardo varð 11.
Seinni æfingin
Vettel varð annar á seinni æfingunni. Ökumenn voru almennt frekar mikið að missa af síðustu beygju brautarinnar. Þeir voru að bremsa of seint þurftu því að aka út fyrir brautina.
Rosberg varð þriðji og Verstappen aftur fjórði. Ricciardo varð hins vegar fimmtii á seinni æfingunni.
Tímatakan verður í beinni útsendingu klukkan 16:50 á morgun á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 17:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.
Hamilton fljótastur á báðum æfingum

Tengdar fréttir

Massa horfir til Formúlu E og þolkappaksturs
Felipe Massa segir að hann myndi horfa til þess að ná í sæti í Formúlu E bíl eða WEC, heimsmeistarakeppninnar í þolakstri ef hann hefði ekki samkeppnishæft sæti í Formúlu 1.

Wolff: Mercedes má ekkert misstíga sig í heimsmeistarakeppninni
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes liðsis í Formúlu 1 segir að liðið megi ekkert misstíga sig í baráttunni um sinn þriðja heimsmeistaratitil í röð.

Bílskúrinn: Mögnuð keppni í Mónakó
Lewis Hamilton vann sína fyrstu keppni á tímabilinu í Mónakó, síðasta sunnudag. Red Bull liðið klúðraði keppninni fyrir sínum manni Daniel Ricciardo sem hefði geta komið fyrstur í mark.

Mercedes ætlar að leita samninga við Rosberg á undan öðrum
Mercedes liðið í Formúlu 1 mun ekki leita samninga hjá öðrum ökumönnum á meðan framtíð Nico Rosberg er óráðin hjá liðinu samkvæmt liðsstjóra þess Toto Wolff.