Gregg: Erum að spila góðan fótbolta 8. júní 2016 22:05 Gregg Ryder þjálfari Þróttar. Vísir/Stefán
Gregg Ryder þjálfari Þróttar var að vonum sáttur eftir sigurinn gegn Gróttu og sagði lið sitt hafa nálgast leikinn á fagmannlegan hátt. „Mér fannst við fagmannlegir. Við vildum skora snemma og ekki gefa þeim neinar vonir. Við kláruðum þá svo vel í seinni hálfleik og ég er mjög ánægður með hvernig við nálguðumst leikinn í kvöld,“ sagði Ryder í samtali við Vísi að leik loknum. „Ég sagði við strákana fyrir leikinn að við gætum gert okkur þetta auðvelt með því að skora snemma og spila vel. En ef við myndum ekki spila vel þá gæti Grótta auðveldlega strítt okkur. Þeir hafa haldið markinu hreinu í fjórum leikjum í 2.deildinni og eru með stóra stráka sem eru sterkir í loftinu. En við vorum vel undirbúnir og nálguðumst verkefnið af fagmennsku,“ bætti Ryder við. Thiago Pinto Borges kom inn á 54.mínútu fyrir Tonny Mawejje sem hafði átt fremur erfitt uppdráttar í fyrri hálfleiknum. „Sóknarleikur okkar varð beinskeyttari þegar Thiago kom inn. Vandamálið í fyrri hálfleik var að við spiluðum of mikið til hliðar og á milli kanta. Thiago átti að koma inn, fá boltann aftarlega og sækja fram á við. Mér fannst við eiga að skapa fleiri færi í fyrri hálfleik miðað við hvað við vorum mikið með boltann,“ sagði Gregg og talaði um að það væri mikilvægt að halda áfram á sigurbraut. „Við unnum á sunnudaginn gegn ÍA og aftur nú í kvöld. Við þurfum að halda áfram að bæta okkur og við erum að spila góðan fótbolta þessa dagana. Við þurfum að halda því áfram í deildinni og stöðugleiki er lykillinn fyrir okkur,“ sagði Gregg Ryder þjálfari Þróttar að lokum.
Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira