Ólafur: Varamennirnir komu sterkir inn Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 9. júní 2016 22:42
Ólafur Jóhannesson vildi ekki gera mikið úr hálfleiksræðu sem breytti leiknum þegar Valur vann Víking 3-2 eftir framlengdan leik í Borgunarbikarnum í kvöld. „Það var ekkert merkilegt. Við byrjuðum leikinn mjög illa og spiluðum fyrri hálfleikinn mjög illa. Í hálfleik fórum við yfir hvað við þurftum að laga og við löguðum einföldustu grunn atriði og skiptum aðeins inn á sem breytti miklu,“ sagði Ólafur. „Varamennirnir komu sterkir inn á. Við erum með ágætlega breiðan hóp sem hjálpar okkur í þessu. Sérstaklega í svona álagi.“ Valur á titil að verja en hefur þurft að sækja Pepsí deildarlið heim í báðum umferðum sínum í bikarnum til þessa. „Að sjálfsögðu fer um mann að lenda svona undir snemma leiks en ég sagði í hálfleik að það væri þó einn jákvæður hluti í leiknum, að það væri einn hálfleikur eftir og menn hefðu enn tíma til að girða sig í brók og laga leikinn og við gerðum það,“ sagði Ólafur Valur var manni fleiri í rúman klukkutíma og þurfti hann allan til að ná sigurmarkinu sem kom á lokamínútu framlengingarinnar. „Hvað hefur það oft gerst í fótbolta að lið missi mann útaf og þá höldum við að leikurinn verði þægilegur og auðveldur og missum það niður. Ég var meðvitaður um að það gæti gerst og bað menn um að vera varkára. „Ég held að það hafi aðalega verið það að við vorum manni fleiri að við áttum meira eftir en þeir í lokin. Ég held að það hafi skilað sér í framlengingunni,“ sagði Ólafur.
Íslenski boltinn Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Fleiri fréttir Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings