Tyson: Allir segja að Tyson Fury sé ónytjungur en ég er hrifinn af honum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. maí 2016 23:00 Tyson fylgist ekki náið með hnefaleikum í dag en kveðst hrifinn af Tyson Fury. vísir/getty
Mike Tyson hefur lýst yfir aðdáun sinni á nafna sínum, Englendingnum Tyson Fury. Heimsmeistarinn fyrrverandi segist ekki fylgjast mikið með hnefaleikum í dag en hann er aðdáandi Furys sem var skírður í höfuðið á honum. „Ég fylgist ekkert sérstaklega mikið með. En mér finnst gaman að horfa á Tyson Fury, út af nafninu og öðru slíku,“ sagði Tyson sem fagnar fimmtugsafmæli sínu í næsta mánuði. Fury er ríkjandi heimsmeistari í þungavigt en hann sigraði Úkraínumanninn Wladimir Klitschko í titilbardaga í Þýskalandi í fyrra. Þeir mætast öðru sinni í Manchester, heimaborg Furys, 9. júlí á þessu ári þar sem Englendingurinn freistar þess að verja titil sinn. „Það segja allir að hann sé ónytjungur en ég er hrifinn af honum. Hann er sá eini sem hefur sigrað hann [Klitschko] í 23 titilvörnum. Hinir áttu að vera einhver hörkutól en þeim tókst ekki að sigra hann,“ sagði Tyson um nafna sinn. „Hann vann svo hvað geturðu sagt? Að hann sé ennþá ónytjungur, en hann sigraði besta hnefaleikakappa síðustu 15 ára,“ bætti Tyson við.Tyson Fury er umdeildur, líkt og nafni sinn.vísir/getty
Box Mest lesið Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Gary sem stal jólunum Enski boltinn Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Enski boltinn Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Enski boltinn Ættingi Endricks skotinn til bana Fótbolti Spilaði reglulega við afa Littlers en mætir nú stráknum á HM Sport Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Enski boltinn Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Enski boltinn Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Enski boltinn Dagskráin í dag: Pílan hefst aftur eftir hlé Sport Fleiri fréttir Eftirmaður Amorims rekinn eftir átta leiki City ætlar að kaupa í janúar Gary sem stal jólunum Spilaði reglulega við afa Littlers en mætir nú stráknum á HM Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Ættingi Endricks skotinn til bana Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Dagskráin í dag: Pílan hefst aftur eftir hlé Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Butler sagður vilja burt frá Miami sem fyrst Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Ólafi tvisvar vikið af velli og ekkert skorað síðustu tvær mínúturnar Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Slæmur skellur fyrir gestina á St. James Park Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Sáu ekki til sólar en unnu samt Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“ Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia „Ég elska NFL en jóladagur er okkar“ Þúsundasta sendingin gripin og hlaupamet Michael Vick slegið Látnir gista líka á æfingasvæðinu Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og fótbolti 76ers sóttu sigur úr Garðinum Sjá meira