Sebastian Vettel fær fimm sæta refsingu

Gírkassinn skemmdist ekki þegar rafkerfið í bíl Þjóðverjans bilaði á seinni æfingu dagsins. Bilunin varð í árekstri Vettel við liðsfélaga sinn hjá Ferrari, Kimi Raikkonen í upphafi kínverska kappakstursins, samkvæmt talsmanni liðsins.
Lewis Hamilton hjá Mercedes skiptir líka um gírkassa fyrir keppnina en verður ekki refsað. Hamilton fékk refsingu fyrir nýjan gírkassa í síðustu keppni og má því taka nýjan um borð núna til að nota í næstu sex keppnum án refsingar.
Tengdar fréttir

Wolff er gapandi yfir þroska Hamilton
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes liðsins í Formúlu 1 segir að Lewis Hamilton hafi þroskast gríðarlega mikið síðan hann kom til liðsins.

Mercedes fljótastir á föstudagsæfingum
Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir Formúlu 1 keppni helgarinnar í Rússlandi, liðsfélagi hans hjá Mercedes Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingu dagsins.

Rosberg á ráspól og Hamilton ræsir aftastur í Kína
Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur í tímatökunni fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Kína á morgun. Daniel Ricciardo á Red Bull varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.

Symonds: Öfug rásröð gæti aukið framúrakstur
Tæknistjóri Williams liðsins í Formúlu 1, Pat Symonds, telur að öfug rásröð myndi þvinga lið til að hanna bíla sem geta betur tekið framúr. Yfirmenn Formúlu 1 liða munu í vikunni taka ákvörðun um reglur ársins 2017.

Arrivabene talar niður uppfærslu Ferrari
Ferrari mun mæta með uppfærðar vélar til Rússlands um helgina. Liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segir uppfærsluna ekki stórfenglega.