Strákarnir kláruðu sitt og skoruðu ekki sjálfsmark í lokin | Eru samt úr leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2016 14:54 Vísir/Getty
Íslenska sautján ára landsliðið í knattspyrnu komst ekki í úrslitakeppni Evrópumótsins þrátt fyrir 1-0 sigur á Grikklandi í lokaleiknum sínum. Austurríki vann Frakkland 2-1 í hinum leiknum og tryggði sér sæti á EM ásamt Frökkum sem voru búnir að vinna riðilinn fyrir lokaumferðina. Austurríkismenn skoruðu sigurmarkið sitt á þriðju mínútu í uppbótartíma en á þeim tímapunkti þurftu bæði Frakkar að skora og Íslendingar að fá á sig mark til þess að íslensku strákarnir kæmust áfram. Íslenska liðið sleppti því þó að skora sjálfsmark í lokin heldur kláraði sinn leik og landaði flottum sigri. Hefðu Austurríkismenn ekki skorað þá hefði íslenska liðið endaði í öðru sæti riðilsins en verið eina liðið í öðru sæti sem sat eftir. Sigurvegarar riðlanna og sjö af átta liðum í öðru sæti komust í úrslitakeppnina. Helgi Guðjónsson skoraði sigurmark íslenska liðsins á 63. mínútu eftir að hafa fengið stoðsendingu frá Jónatan Inga Jónssyni. Þetta var eina mark íslenska liðsins í riðlinum.Helgi Guðjónsson skoraði sigurmark Íslands.Vísir/Getty
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira