Fótbolti

Kevin Keegan, Ruud Gullit og David Moyes halda fyrirlestra á Íslandi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
David Moyes mætir til landsins enda mikill Íslandsvinur.
David Moyes mætir til landsins enda mikill Íslandsvinur. Vísir/Getty
Kevin Keegan, Ruud Gullit, David Moyes og Martin O'Neil verða allir á meðal fyrirlesara á ráðstefnu um fótbolta og viðskipti sem haldin verður í Hörpu aðra vikuna í maí.

Ramon Calderón, fyrrverandi forseti Real Madrid, kynnti ráðstefnuna á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Íslandsbanka í dag, en Calderón er heillaður af íslenskri knattspyrnu og því "kraftaverki" að strákarnir okkar komust á EM í fyrsta sinn.

Rauði þráður rástefnunnar er hversu margt er líkt með viðskiptum og fótbolta og hvernig fólk í viðskiptaheiminum getur nýtt sér þekkingu úr fótboltaheiminum og öfugt.

Um 800 manns munu fá miða á ráðstefnuna þar sem vonast er til að Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson verði á meðal fyrirlesara.

"Þeir verða að vera þarna. Þeir eru mennirnir sem framkvæmdu kraftaverkið og geta kennt okkur meira en allir," sagði Ramon Calderón á fundinum.

Viðtal við Ramon Calderón kemur inn á Vísi aðeins síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×