Innkalla gríðarlegt magn Mars og Snickers í Þýskalandi Atli ísleifsson skrifar 23. febrúar 2016 14:02 Innköllunin nær til vara með "best fyrir“ dagsetningar 19. júní 2016 til 8. janúar 2017. Vísir/Getty
Bandaríski sælgætisframleiðandinn Mars hefur innkallað gríðarlegan fjölda Mars og Snickers-stykkja í 55 ríkjum, þeirra á meðal Þýskalandi og Frakklandi, eftir að plastagnir fundust í einu stykkjanna. Fyrirtækið hefur einnig innkallað Milky Way Mini og ákveðnar gerðir af Celebrations-kössum. Í frétt BBC kemur fram að þær vörur sem eru innkallaðar séu með „best fyrir“ dagsetningar 19. júní 2016 til 8. janúar 2017. Fyrirtækið hefur ekki gefið upp um magnið sem um ræðir, en verksmiðjur fyrirtækisins í Þýskalandi framleiða um tíu milljónir stykkja á hverjum degi. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu kemur fram að með innkölluninni vilji fyrirtækið koma í veg fyrir að fólk neyti varanna sem um ræðir. Listi með nákvæmum upplýsingum um vörurnar á að vera til á síðunni www.mars.de en hún liggur niður að svo stöddu. Ekki er ljóst hvort þetta sé umfangsmesta innköllun í sögu fyrirtæksins.Uppfært 15:55: Gunnar Grétar Gunnarsson, deildarstjóri innflutningsdeildar SS, sem flytur inn umrædd vörumerki til Íslands, segir að SS hafi ekki fengið upplýsingar um að innkönnunin nái til Íslands.
Mest lesið Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira