Íslenski boltinn

Ivanovski aftur í Fjölni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fjölnir hélt hreinu í fjórum af átta deildarleikjum sem Ivanovski lék með liðinu í fyrra.
Fjölnir hélt hreinu í fjórum af átta deildarleikjum sem Ivanovski lék með liðinu í fyrra. vísir/valli
Makedónski miðvörðurinn Daniel Ivanovski er genginn í raðir Fjölnis á ný og mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni á næsta tímabili.

Þetta eru góðar fréttir fyrir stuðningsmenn Fjölnis en Ivanovski lék afar vel með liðinu á síðasta tímabili.

Ivanovski, sem er 32 ára, lék átta deildarleiki með Fjölni í fyrra en liðið vann fimm þeirra og hélt fjórum sinnum hreinu.

Hann yfirgaf Grafarvogsliðið svo nokkuð óvænt um miðjan júní vegna fjölskylduaðstæðna og gekk aftur til liðs við sænska B-deildarliðið Mjällby.

Fjölnismönnum veitir ekki af liðsstyrk en hefur liðið misst marga sterka leikmenn í vetur og steinlá fyrir FH, 4-0, í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×