Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Akureyri 22-15 | Akureyringar hlupu á vegg Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 3. febrúar 2016 15:11
Valur lagði Akureyri 22-15 á heimavelli í 19. umferð Olís deildar karla í handbolta í kvöld. Valur var 12-11 yfir í hálfleik.Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum hér fyrir ofan. Jafnræði var með liðunum allan fyrri hálfleikinn og leyndi sér ekki að leikurinn var fyrsti leikur eftir langt frí. Bæði lið hafa leikið mun betur á leiktíðinni en spenna var þó í leiknum fyrstu 30 mínúturnar. Valur byrjaði seinni hálfleikinn mun betur og komst í 15-11 en þá skoraði liðið ekki í heilar 13 mínútur. Valsmenn örvæntu þó ekki því liðið fékk fín færi en strandaði fyrsta og fremst á öflugum ungum markverði Akureyringa, Bernharði Antoni Jónssyni. Akureyringar nýttu sér ekki vandræði Vals sem skildi. Liðið minnkaði muninn í tvö mörk en komst ekki nær því sóknarleikur liðsins varð sífellt vandræðalegri er leið á seinni hálfleikinn. Liðið átti í miklum vandræðum með að skapa sér færi auk þess sem Hlynur Morthens fór mikinn í marki Vals. Eftir að stíflan brást hjá Val og varð aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda. Valsmenn með alla leikmenn heila í fyrsta sinn á leiktíðinni unnu að lokum sannfærandi sigur með Guðmund Hólmar Helgason og Elvar Friðriksson áberandi í sókninni. Akureyringar eiga í miklum meiðslavandræðum. Liðið saknar lykilmanna auk þess sem leikmenn leika meiddir. Munar mikið um að Bergvin Þór Gíslason gengur ekki heill til skógar en hann lék þó stóran hluta leiksins en það var auðséð að öxlin væri að angra hann. Akureyri má ekki við meiðslum sem þessum þegar liðið mætir liði í gæðaflokki Vals og þó vörnin hafi staðið ágætlega átti liði engar lausnir í sókninni þegar menn fóru að þreytast enda skoraði liðið aðeins 4 mörk í seinni hálfleik. Valur náði Haukum að stigum í efsta sæti deildarinnar en Haukar eiga leik til góða á morgun gegn Aftureldingu. Akureyri er um miðbik deildarinnar. Guðmundur Hólmar: Verðskuldaður sigur „Vörnin þéttist og Bubbi (Hlynur Morthens) fann sig vel. Svo fundum við leiðina framhjá markverðinum þeirra þá breikkaði bilið mjög fljótt. Þetta var verðskuldaður sigur,“ sagði Akureyringurinn Guðmundur Hólmar Helgason leikmaður Vals. „Þeir eiga við meiðsli að stríða og eru ekki með breiðasta hópinn en þeir sem komu inn lögðu sig alla í þetta en það dró af þeim í seinni hálfleik,“ sagði Guðmundur Hólmar um sína gömlu félaga. „Öll stig eru ótrúlega mikilvægt. Það er gott að byrja árið svona. Það er mjög jákvætt.“ Sverre: Tækifærið var þarna „Ég var mjög ánægður með fyrri hálfleikinn og við vorum með annað í huga fyrir seinni hálfleikinn,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson þjálfari Akureyrar. „Við missum þá aðeins fram úr okkur í byrjun seinni hálfleiks en náum að minnka muninn og fáum svo fjölmarga sénsa til að gera betur úr þeirri stöðu. Við náum aldrei að minnka þetta í eitt mark eða gera betur og svo ná þeir öðru sprett og þá var þetta erfitt.“ Það munaði mikið um að lykilmenn á borð við Brynjar Hólm Grétarsson og Sigþór Heimisson vantar í lið Akureyrar auk þess sem Bergvin Þór Gíslason lék meiddur. Sverre vill samt ekki nota það sem afsökun. „Tækifærið var þarna en við vorum orðnir hálf lúnir með þunnskipaðan hóp. Það er engin afsökun. Við ætluðum að gera mikið betur. „Við tökum á hverri prófraun fyrir sig án þess að horfa á einhverjar afsakanir. Það er auðvelt að benda á eitt og annað eftir leik en við vorum ekki með alla okkar leikmenn og það voru menn hér að fá að reyna sig í fyrsta skipti sem er frábært og gefur þeim mikilvæga reynslu,“ sagði Sverre en það var í raun breiddin sem skildi á milli liðanna. „Valsmenn eru með þéttan bekk og alla heila en við ekki. Þá er þetta erfitt. Þeir rúlla vel á hópnum á meðan mínir menn þreytast sem sást vel á þeim kafla þegar Valur gerir út um leikinn.“Sverre Andreas Jakobsson þjálfari Akureyrar.Vísir/ErnirGuðmundur Hólmar Helgason.Vísir/ErnirIngimundur Ingimundarson og félagar komust lítið áleiðis í kvöld.Vísir/Ernir
Olís-deild karla Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Handbolti Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Fótbolti Fleiri fréttir Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Sjá meira