Norðmenn drógu kæruna til baka Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. janúar 2016 10:01 Skjáskot af lokasekúndu leiksins í gær.
Handknattleikssamband Noregs hefur ákveðið að draga kæru sína til baka og munu því úrslitin í leiknum gegn Þýskalandi á EM í handbolta standa óbreytt. Norðmenn töldu að Þýskaland hafi verið með of marga leikmenn inni á vellinum áður en leiktíminn rann út og virtust upptökur í sjónvarpi styðja það.Sjá einnig: Norðmenn lögðu fram kæru eftir tapið Framlengja þurfti leikinn, sem var æsispennandi, en Þjóðverjar skoruðu sigurmarkið nokkrum sekúndum fyrir lok framlengingarinnar. Í yfirlýsingu norska sambandsins kemur fram að fram hafi komið fjöldi myndbanda og ljósmynda sem styðja kæru norska sambandsins. Hið rétta hefði verið að vísa leikmanni Þýskalands af velli og að Noregur fengi að spila síðustu sekúndur leiksins í yfirtölu.Sjá einnig: Þýskaland með tólf leikmenn inn á í einu „Noregur trúir á „fair play“ og að úrslit leiksins eigi að ráðast inn á vellinum en ekki í fundarherbergi,“ segir í yfirlýsingu norska sambandsins. „Þess vegna óskuðum við eftir því að starfsmenn [á ritaraborði] myndu bregðast við þegar brotin áttu sér stað.“ „Þrátt fyrir sterk sönnunargögn hefur Noregur ákveðið að draga kæruna sína til baka. Við höfum í bréfi til EHF óskað eftir því að handboltinn bregðist við svo að svona lagað muni ekki endurtaka sig.“Sjá einnig: Dagur með Þýskaland í úrslitin á EM Noregur mætir Króatíu í bronsleiknum á EM á morgun en Þýskaland og Spánn mætast í úrslitaviðureigninni.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Fótbolti Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Íslenski boltinn „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Íslenski boltinn „Flott frammistaða miðað við aðstæður“ Fótbolti Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira