Pirelli vill sátt um dekkjastefnu 31. janúar 2016 12:00 Pirelli dekk í hrönnum. Vísir/Getty
Pirelli telur að fundur sem verður í næstu viku með ökumönnum og liðum í Formúlu 1 sé afbragðs tækifæri fyrir íþróttina að ná sátt um stefnu í dekkjamálum. Yfirmenn Pirelli munu funda með ökumönnum, liðum og fulltrúum FIA, alþjóða akstursíþróttasambadsins. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Pirelli í Mílanó á Ítalíu 2. febrúar. Markmið fundarins er að ræða hugmyndina um að dek í Formúlu 1 eigi að bjóða ökumönnum að nýta öllum stundum allt afl sem bílarnir hafa að bjóða. Dekkin hafa verið fengið vinnuheitið „Maximum attack tyres,“ sem myndi útleggjast sem „í botni dekk,“ á íslensku.Paul Hembrey, yfirmaður kappakstursmála hjá Pirelli segir að nú sé kominn tími til að Pirelli fá skýra sín á hvað allir aðilar vilja. Pirelli styður hugmyndir um breytta sýn og vill ekki setja sig á móti breytingum sem gætu orðið. „Við erum virkilega glöð að allir viðkomandi aðilar ætli að setjast niður og ræða hvaða marki eigi að stefna að,“ sagði Hembrey í samtali við Motorsport.com. Hembrey vill bæta við að liðin í Formúlu 1 verði að vera reiðubúin að taka mikilvægum reglubreytingum með opnum örmum. Liðin verði að vera tilbúin að taka þátt í prófunum og tilraunum sem Pirelli þarf að gera til að skila þeirri vöru sem óskað verður eftir. „Við viljum hlusta á ökumennina og við viljum gjarnan skila þeirri vöru sem þeir óska eftir.Sebastian Vettel sprengdi dekk í mexíkóska kappakstrinum.Vísir/GettyÞróunin Pirelli hóf að skaffa dekk í Formúlu 1 árið 2011. Þá óskuðu skipuleggjendur Formúlu 1 eftir dekkjum sem slitnuðu mikið og neyddu lið til að taka tvö til þrjú þjónustuhlé í hverri keppni. Ökumenn hafa ekki verið ánægðir með þessi dekk því þeim finnst þeir eyða miklum tíma í að spara dekkin. Mörg lið hafa einnig gagnrýnt þessi dekk því þau hamli því að liðin sýni hvað bílar þeirra geta raunverulega. Pirelli hefur í kjölfari gagnrýninnar gert dekkin slitsterkari. Þá hafa aðrar gagnrýnisraddir vaknað sem segja að keppnirnar séu ekki lengur spennandi vegna þess að dekkin endist of lengi. Fundinum er ætlað að komast að samkomulagi um framtíðarsýn sem allir aðilar geta sammælst um og að deilan leysist.Paul Hembrey, yfirmaður kappakstursmála hjá Pirelli.Vísir/GettyPrófanir fyrir 2017 Pirelli er löngu búið láta í ljós að fyrirtækið þurfi að fá meiri prófanir fyrir breytingar sem taka eiga gildi 2017. Ætlunin er að afturdekkin verði gerð breiðari og veiti því meira grip. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir Pirelli er enn óljóst hvernig prófunum verður háttað. Pirelli vonast til að lausn finnist á þessu á fundinum í næstu viku. „Við höfum þegar sagt að við þurfum 30.000 kílómetra prófanir og við erum sátt við að byrja með gamlan Toyota eða Lotus bíl og tvinna það saman við bíl með nýjum undirvagni seinna á árinu til að staðreyna það sem gert var með gamla bílnum,“ sagði Hembrey að lokum.
Formúla Tengdar fréttir Vettel fljótastur á seinni prófunardegi Sebastian Vettel á Ferrari var fljótastur á seinni degi regndekkjaprófana Pirelli í Frakklandi. 27. janúar 2016 11:30 Hamilton mögulega vísað úr keppni: Ekki mitt að passa þrýstinginn Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í ítalska kappakstrinum. Athugun FIA á loftþrýsting í dekkjum Mercedes gæti leitt til brottvísunar Hamilton. Hver sagði hvað eftir skemmtilega keppni? 6. september 2015 14:18 Ricciardo fljótastur í dekkjaprófun Daniel Ricciardo var fljótastur á Red Bull á fyrsta degi prófana hjá Pirelli. Regndekk voru prófuð á Paul Ricard brautinni í Frakklandi í dag. 25. janúar 2016 20:30 Magnussen tekur sæti Maldonado hjá Renault Kevin Magnussen, fyrrum ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 mun samkvæmt heimildum Autosport taka sæti Pastor Maldonado hjá Renault liðinu í Formúlu 1. 29. janúar 2016 06:30 Vettel: Óásættanlegt að dekkin springi Sebastian Vettel ökumaður Ferrari liðsins var æfur í garð dekkjaframleiðandans Pirelli eftir að dekk sprakk a bíl hans á rúmlega 300 km/klst á Spa brautinni í dag. 23. ágúst 2015 21:30 Berger: Alonso er ekki lengur bestur Gerhard Berger, fyrrum Formúlu 1 ökumaður segir að síðasta tímabil hafi eitt og sér breytt ásýnd tveggja bestu ökumannanna í Formúlu 1. 29. janúar 2016 15:45 Mest lesið Fimm ástæður þess að Ísland vinni EM Fótbolti „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Íslenski boltinn Jón Daði skrifar undir hjá Selfossi Íslenski boltinn „Auðvitað á þetta að vera svona hjá KSÍ líka“ Fótbolti Svona var fundurinn fyrir fyrsta leik Íslands á EM Fótbolti Opnaði Instagram og sá að hún væri á leiðinni á EM í Sviss Fótbolti „Ef þú vilt ekki vera hérna, farðu bara“ Fótbolti City úr leik eftir sjö marka spennutrylli gegn Al-Hilal Fótbolti EM í dag: Ánægjuleg truflun og þungu fargi létt Fótbolti Glódís alveg búin að kveðja meiðslin og allar klárar í slag við Finna Fótbolti Fleiri fréttir Ber engan kala til Antonelli eftir áreksturinn Norris vann í Austurríki og minnkaði forskot liðsfélagans Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Norris á ráspól á morgun með yfirburðum „Ekki láta ykkur detta það í hug að afskrifa Hamilton“ Kvörtun Red Bull „smámunasemi“ og „vandræðaleg“ Miður sín eftir að hann keyrði yfir dýr í miðri keppni „Þetta hef ég aldrei heyrt kappakstursökumann segja áður“ Russell kom, sá og sigraði í Kanada Verstappen pirraður á barnalegum spurningum um bannið Russell aftur á ráspól í Kanada: „Virkilega ánægður“ Næsta dagatal klárt: Imola dettur út en Madrid kemur ný inn Bara þrír sem fá að heimsækja Michael Schumacher Sakaður um viljandi árekstur: „Bara séð svona í leikjum og go-kart“ Sjá meira
Vettel fljótastur á seinni prófunardegi Sebastian Vettel á Ferrari var fljótastur á seinni degi regndekkjaprófana Pirelli í Frakklandi. 27. janúar 2016 11:30
Hamilton mögulega vísað úr keppni: Ekki mitt að passa þrýstinginn Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í ítalska kappakstrinum. Athugun FIA á loftþrýsting í dekkjum Mercedes gæti leitt til brottvísunar Hamilton. Hver sagði hvað eftir skemmtilega keppni? 6. september 2015 14:18
Ricciardo fljótastur í dekkjaprófun Daniel Ricciardo var fljótastur á Red Bull á fyrsta degi prófana hjá Pirelli. Regndekk voru prófuð á Paul Ricard brautinni í Frakklandi í dag. 25. janúar 2016 20:30
Magnussen tekur sæti Maldonado hjá Renault Kevin Magnussen, fyrrum ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 mun samkvæmt heimildum Autosport taka sæti Pastor Maldonado hjá Renault liðinu í Formúlu 1. 29. janúar 2016 06:30
Vettel: Óásættanlegt að dekkin springi Sebastian Vettel ökumaður Ferrari liðsins var æfur í garð dekkjaframleiðandans Pirelli eftir að dekk sprakk a bíl hans á rúmlega 300 km/klst á Spa brautinni í dag. 23. ágúst 2015 21:30
Berger: Alonso er ekki lengur bestur Gerhard Berger, fyrrum Formúlu 1 ökumaður segir að síðasta tímabil hafi eitt og sér breytt ásýnd tveggja bestu ökumannanna í Formúlu 1. 29. janúar 2016 15:45