Markaðir bregðast við ástandinu í Kína Sæunn Gísladóttir skrifar 4. janúar 2016 15:21 Á Wall Street lækkuðu Dow Jones, S&P 500 og Nasdaq vísitölurnar um tvö prósent við opnun. vísir/afp
Markaðir í Evrópu og Bandaríkjunum hafa í dag brugðist við skörpum verðlækkunum á kínverskum hlutabréfamörkuðum. Á Wall Street lækkuðu Dow Jones, S&P 500 og Nasdaq vísitölurnar um 2 prósent við opnun. Í nótt hrundu hlutabréf í Kína með þeim afleiðingum að kínverskum kauphöllum var lokað. Í Bretlandi lækkaði FTSE 100 um 2 prósent, virði hlutabréfanna lækkaði þá um það sem nemur 7.300 milljarða króna. Hlutabréf í Þýskalandi lækkuðu enn frekar, eða um 3,8 prósent. Þá lækkuðu Dow Jones, S&P 500 og Nasdaq vísitölurnar á Wall Street um tvö prósent við opnun. Sömu sögu er að segja í Asíu þar sem Nikkei 225 vísitalan í Japan lækkað um 3,1 prósent og Hang Seng í Hong Kong lækkaði um 2,6 prósent. Kauphöllunumum í Sjanghæ og Shenzhen var lokað eftir skarpar verðlækkanir í nótt. Vísitalan í Kauphöllinni í Sjanghæ lækkaði um 6,9 prósent og verðlækkanirnar í Shenzhen urðu 8 prósent, en þar eru mörg tæknifyrirtæki skráð. Hlutabréf lækkuðu á öðrum asískum mörkuðum í kjölfarið.
Tengdar fréttir Kínverskum kauphöllum lokað eftir skarpt verðfall Hlutabréfaverð féll um 6,9 prósent í Kauphöllinni í Sjanghæ. 4. janúar 2016 09:17 Mest lesið Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Viðskipti innlent Furðar sig á blekkingarbrigslum Heimildarinnar Viðskipti innlent Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Viðskipti innlent Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Viðskipti innlent Sorpa endurskoðar verðskrá vegna losunar hrossataðs Neytendur Góð kjör á afmælissýningu Toyota Samstarf Hafa bæst í eigendahóp PwC Viðskipti innlent Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Viðskipti innlent Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Atvinnulíf Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjónvarpskóngur allur Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Bölvað basl á Bond Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti Ræða samruna Honda og Nissan Bitcoin nær nýjum hæðum vegna Trumps Enn þynnri og samanbrjótanlegur iPhone Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Verð á kaffi sögulega hátt Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Sjá meira
Kínverskum kauphöllum lokað eftir skarpt verðfall Hlutabréfaverð féll um 6,9 prósent í Kauphöllinni í Sjanghæ. 4. janúar 2016 09:17