Ákváðum að skella okkur í þetta ævintýri Henry Birgir Gunnarsson skrifar 4. ágúst 2015 06:15 Björgvin er á leið í mikið ævintýri á morgun. fréttablaðið/andri „
Nú er stefnan bara sett á að yfirgefa landið á miðvikudag,“ segir nýjasti atvinnumaður Íslendinga, Björgvin Hólmgeirsson, en hann skrifaði í gær undir tíu mánaða samning við Al Wasl SC frá Dúbaí. Hann verður fyrsti íslenski handboltamaðurinn til þess að spila í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. „Þetta var besta peningatilboðið sem ég fékk,“ segir Björgvin en sænska liðið Skövde og rúmenska liðið Dinamo Búkarest vildu líka fá hann frá ÍR. Hann segist þó ekki verða moldríkur á þessum samningi. „Hitt gekk mjög brösuglega fyrir sig og við fjölskyldan ákváðum því að skella okkur í þetta ævintýri. Þetta verður mjög fróðlegt.“ Björgvin er orðinn 27 ára gamall og á því vonandi sín bestu ár eftir í boltanum. „Ég veit nákvæmlega ekkert hvað ég er að fara út í. Ég þekki engan annan leikmann í liðinu en mér er sagt að þeir séu allir heimamenn og landsliðsmenn. Það má bara vera einn Evrópubúi í hverju liði. Mér sýnist á öllu að þetta sé átta eða níu liða deild og fullt af keppnum inn á milli. Þetta lið varð um miðja deild í fyrra.“ Aðdragandinn að þessum félagaskiptum var ekki langur eða um tvær vikur. „Vonandi gengur mér vel og ég fæ nýjan samning. Ég verð örugglega sendur heim snemma ef ég get ekki neitt. Ég ætla bara að fara út og sjá til hvað gerist hjá mér.“
Olís-deild karla Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira