Uppsafnaðar hreyfingar og stöður Sesselja G. Magnúsdóttir skrifar 7. maí 2015 13:30 Macho Man Saga Sigurðardóttir í Macho Man eftir Katrínu Gunnarsdóttur. Photographer.is/Geirix
Macho Man & Saving History Tjarnarbíó Danshöfundur: Katrín Gunnarsdóttir Dansarar: Katrín Gunnarsdóttir og Saga Sigurðardóttir Í sólóverkunum Macho Man og Saving History safnar Katrín Gunnarsdóttir saman hreyfingum og líkamsstöðum úr mismunandi menningarkimum sem byggja á líkamstjáningu eins og dansi, bardagaíþróttum, fitnesskeppnum og rokki og setur saman í dansverk. Í báðu tilfellum fær hún að láni eða „stelur“ þekktu hreyfiefni sem hún síðan setur saman á nýjan hátt í nýju samhengi. Stuldurinn eða lánið er efni verkanna í báðum tilfellum. Hún reynir ekki að fela „glæpinn“ heldur opinberar hann, greinir og skoðar hvert eðli þýfisins er og hvernig hægt er að nýta það til eigin nota. Í báðum verkunum er það hreyfiefnið sem er í forgrunni, umgjörð og búningar eru mjög einfaldir og tónlistin er engin. Í Saving History afhjúpar Katrín hvernig hún hefur „fengið dansrútínur lánaðar (jafnvel stolið þeim) frá öðrum danshöfundum og skeytt snyrtilega saman“ við sínar eigin danssmíðar. Fjölbreyttur hreyfibakgrunnur hennar kemur vel í ljós og það kætir áhorfendur þegar þeir sjá kunnuglegar hreyfingar úr þekktum dansstílum og dansverkum þekktra íslenskra höfunda birtast á sviðinu í þessu óvenjulega samhengi. Það er áhugavert að sjá hvernig Katrín tekst jafnt á við það sem hún er sterk í og sem hún hefur ekki náð fullkomnum tökum á eða hentar ekki vel hennar líkama. Framsetning efnisins er nýstárleg. Um er að ræða samansafn hreyfinga án sýnilegrar framvindu eða sögu. Hreyfingarnar byltast fram í belg og biðu rétt eins og ef lesnir væru þekktir frasar úr þekktum bókamenntaverkum hver á eftir öðrum samhengislaust og án leikrænna tilþrifa. Útfrá hefðbundinni fagurfræði er varla hægt að kalla verkið list, til þess er það of hversdagslegt – Katrín sem dansar sjálf í verkinu er klædd hversdagslegum æfingafötum og lýsingin sem er það eina sem styður hana á sviðinu er lítt áberandi og hversdagsleg. Það er samt eitthvað heillandi við framvinduna og þessa hráu framsetningu. Þessa ofgnótt danslegra minna, þetta mikla magn hreyfiefnis sem dansaranum tekst að muna og ekki síst hreyfifærni hennar sem er ótvíræð.Photographer.is/GeirixMacho Man býr yfir sama grunnsjarma og Saving History. Eins og fyrr er unnið með lánaðan eða stolinn hreyfiforða og hann tekinn úr sínu upprunalega samhengi og settur saman upp á nýtt í röð svipmynda sem hvorki mynda sögu né hafa sýnilega framvindu. Efniviður þessa verks eru hreyfingar, hreyfifrasar og líkamsstellingar úr athöfnum (nánast helgiathöfnum) tengdum hinum ofur-karlmannlega líkama eins og bardagaíþróttum, fitnesskeppnum og sviðsframkomu þekktra karldansara og rokkstjarna. Karlmennskan er í fyrirrúmi hvað efnisval varðar en dansarinn sem miðlar efninu til áhorfendanna er lítil og grönn kona (Saga Sigurðardóttir) sem er í alla staði mjög kvenleg og gerir það verkið sérlega spennandi áhorfs. Þetta verk er markvissara og skýrara en það fyrra meðal annars vegna þess að einfaldir búningar eru komnir til sögunnar og lýsingin er meira afgerandi þó að hún sé enn í látlausari kantinum. Það vekur vonir um áframhaldandi þróun í þá átt að skoða líkamann og framsetningu hans í mismunandi menningarkimum.Niðurstaða: Í Macho Man & Saving History er áhugaverð rannsókn á líkamanum og framsetningu hans í mismunandi menningarlegu samhengi sem vonandi er rétt að byrja.
Gagnrýni Menning Mest lesið Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Lífið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Lífið Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Settu tærnar upp í loft og fengu knús Menning „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Lífið Hundrað skvísur blómstruðu saman Lífið Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Lífið samstarf Fleiri fréttir KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Kjánalegar klisjur og kærulausir kappar Misheppnaður mömmuleikur Hugljúft en stutt gaman Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Hvað eiga frægasti djasstónlistarmaður heims og íslensk kráka í Feneyjum sameiginlegt? Öskrað á of litlu sviði Lengsti klukkutími ævinnar Sjá meira