Bíó og sjónvarp

Stuttmyndin Heimanám í Cannes

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Birnir Jón og Elmar eru að vonum ánægðir með að stuttmynd þeirra verði sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Birnir Jón og Elmar eru að vonum ánægðir með að stuttmynd þeirra verði sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Vísir/Stefán
Stuttmyndin Heimanám eftir þá Birni Jón Sigurðsson og Elmar Þórarinsson verður sýnd í sérstöku stuttmyndahorni á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi þann 13. til 24. maí næstkomandi.

Birnir segir þá félagana hæstánægða og tíðindin hafa komið þeim talsvert á óvart. „Við fengum að vita þetta fyrir svona viku en maður trúði þessu eiginlega ekki og vildi ekki vera að segja frá strax og jinxa,“ segir hann glaður í bragði.

Síðastliðinn mars vann Heimanám verðlaun sem besta stuttmyndin á alþjóðlegri kvikmyndahátíð á Tahítí og kom boðskort til Cannes í kjölfarið. „Þetta er rosalega góður stökkpallur einmitt til þess að komast inn á aðrar hátíðir eða gera mynd í fullri lengd,“ segir Birnir hress.

Þeir hafa ekki ákveðið næsta verkefni en hafa ýmsar hugmyndir og standa nú í ströngu við það að senda Heimanám inn á aðrar kvikmyndahátíðir.

„Þetta er svo skrítið af því að þetta er fyrsta stuttmyndin sem við gerum. Það er alveg klikkað að ná svona langtímamarkmiði strax,“ segir hann hress og bætir við: „Ég held að hjá öllum leikstjórum og kvikmyndagerðarfólki sé Cannes svona „ultimate“ tindur."


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×