Lífið

Miley sleikir á sér tærnar í nýju myndbandi

Nýtt myndband söngkonunnar Miley Cyrus við lagið BB Talk hefur vakið talsverða athygli.

Þar má sjá söngkonuna klædda eins og ungabarn, skríðandi á gólfi og að sleikja á sér tærnar.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Miley klæðir sig upp eins og ungabarn, en í  tónleikaferðalagi sem hún lagði í með hljómsveitinni Flaming Lips á dögunum klæddist hún bleyju og drakk úr pela á sviðinu.

Miley hefur reglulega hrist upp í hlutunum og farið mikinn í slúðurpressunni undanfarin ár, eftir að hún ákvað að segja skilið við Hannah Montana barnastjörnu ímyndina.

Sjá einnig:8 umdeildustu uppátæki Miley Cyrus árið 2013

Hún hefur meðal annars setið nakin á járnkúlu í myndbandi við lagið Wrecking Ball og setið fyrir í erótískri myndatöku með umdeilda ljósmyndaranum Terry Richardson.

Sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×