Íslenski boltinn

Finnur Orri kynntur til leiks hjá KR

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Finnur Orri í leik með Blikum.
Finnur Orri í leik með Blikum. vísir/daníel
KR-ingar hafa boðað til blaðamannafundir klukkan 14.00 í dag þar sem þeir munu kynna nýjan leikmann félagsins.

Samkvæmt heimildum Vísis mun KR kynna Finn Orra Margeirsson til leiks á fundinum.

Finnur Orri er uppalinn Bliki en fór frá þeim til FH. Hann náði þó aldrei að spila alvöru leik með liðinu því hann fór til Lilleström áður en af því varð.

Noregsævintýrinu er aftur á móti lokið og Finnur Orri mun reyna fyrir sér í Vesturbænum næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×