Stunginn grís Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 30. nóvember 2015 08:00 Hann er 43 ára gamall, einhleypur og býr hjá móður sinni. Þrátt fyrir að vera atvinnulaus og þar af leiðandi heima allan daginn hjálpar hann aldrei til við heimilisstörfin. Mamma hans þrífur af honum, eldar ofan í hann matinn og vikulega fær hann vasapeninga sem fara að mestu í rugl. Fyrir nokkrum árum lenti móðir hans í fjárhagskröggum og þá samþykkti hann með semingi að fá aðeins minni vasapeninga en nú finnst honum komið nóg. Er sanngjarnt að það bitni á honum þó að hún hafi það slæmt? „Af hverju flyturðu ekki að heiman?“ spyrja furðu lostnir vinir og vandamenn. „Ja, hvað þýðir það að flytja að heiman?“ spyr hann á móti. „Ég vil fyrst skilgreina það,“ segir hann og bætir því við að hann líti nú reyndar svo á að hann sé þegar fluttur að heiman. Hann ráði til dæmis núna öllum sínum „innri málum“ og meðvirk móðir hans tekur undir það. Hún getur eiginlega ekki hugsað sér heimilislíf án hans, enda þekkir hún ekkert annað. Það sem hún hins vegar veit ekki er að líf án 43 ára gamla, hómófóbíska offitusjúklingsins inni á heimilinu væri betra líf. Hún gæti sparað gríðarlega fjármuni og eytt þeim í eitthvað þarfara; til dæmis löngu tímabærar viðgerðir á húsinu eða lyfin sem hún þarf en neitar sér um. Svo er líka alls ekki óhugsandi að sonurinn gæti vel staðið á eigin fótum og jafnvel fundið hamingjuna, sjálfstæður og engum háður. Þótt hann myndi eflaust emja eins og stunginn og heimtufrekur grís í fyrstu. Að öðru og algjörlega ótengdu. Sóknargjöld eru reiknuð út frá trúfélagsskráningu 1. desember. Þið þurfið því að afskrá ykkur í dag ef þið ætlið ekki að vera með í heilt ár til viðbótar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haukur Viðar Alfreðsson Mest lesið Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Halldór 5.9.2026 Halldór Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun