Glamour

Óður til feminismans

Ritstjórn skrifar
Amy Schumer
Amy Schumer Skjáskot
Pirelli dagatalið fyrir árið 2016 verður frumsýnt í dag, en beðið hefur verið eftir því með mikilli eftirvæntingu þetta árið.

Dagatalið, sem þekkt er fyrir að hafa þekktar, fáklæddar fyrirsætur á myndunum sínum, breytti algjörlega um stíl í þetta sinn. Myndirnar tók engin önnur en Annie Leibowitz. 

„Ég hleypti engum frá Pirelli inn í stúdíóið á meðan á myndatökunni stóð,“ sagði Annie um það hvernig hún breytti dagatalinu í óð til feminismans.

Myndirnar prýða þekktar konur sem skarað hafa framúr á hinum ýmsu sviðum.

Meðal þeirra sem sitja fyrir í dagatalinu eru grínistinn Amy Schumer, tenniskonan Serena Williams og tónlistarkonan Patti Smith. 

Um myndina af Amy hafði Annie þetta að segja: „Það mikilvægasta við myndina af henni er að hún á að líta út eins og hún hafi ekki fengið skilaboðin um að hún ætti að vera fullklædd.“





Serena Williamsskjáskot
Patti Smithskjáskot


×