Háð og holl ráð Ívar Halldórsson skrifar 23. nóvember 2015 11:44 Í kjölfar þess að um 400 saklausir borgarar hafa látið lífið á stuttum tíma í árásarhrinum Rússa í Sýrlandi er eðlilegt að líta í kringum sig og ganga úr skugga um að fólk sem fordæmir fjöldamorð sé ekki örugglega hneykslað á því að Rússar passi sig ekki betur. Að komast upp með að sprengja fjóra spítala ætti að fá fólk til að rísa upp á afturfæturna og fordæma þessi fjöldamorð af hendi Rússa. Vopnabúr Rússa er talsvert stærra en vopnabúr ISIS manna og því óeðlilegt að beita miklu herafli, þ.e. nota herflugvélar þegar hægt er að sýna hernaðarlegan skilning með því að senda inn rússneska hermenn í sjálfsmorðsvestum....eða hvað??? Ég ímynda mér til gamans að bréf frá Ísrael liggi nú á borði Frakklandsforseta, dagsett daginn eftir hryðjuverkaárásina í París. Bréf þar sem Ísrael miðlar af reynslu sinni í viðureign við öfgamenn í kjölfar Parísarárásanna. Ég gæti ímyndað mér að bréf þetta frá Ísrael til Frakka þyrfti að vera pólitískt rétt ritað – þ.e. skrifað með ráðleggingar heimsbyggðarinnar til Ísraels, til hliðsjónar. Auðvitað er pínu hæðnistónn í framsetningu bréfsins, en hæðnin getur þó stundum verið holl og hjálpleg við mat á eigin siðgæði: „Kæru Frakkar, Mig langar til að deila reynslu okkar af hryðjuverkum hér í Ísrael í kjölfar „óeirða“ og „atburða“ þeirra sem áttu sér því miður stað í landi ykkar fyrir stuttu. Þið kallið þetta hryðjuverk, en heimsbyggðin kallar þetta ekki sömu nöfnum þegar þetta gerist hér í Ísrael. Vonandi munu ráðleggingar okkar hjálpa ykkur að sætta ykkur við ástandið og koma í veg fyrir slík „atvik“ í framtíðinni – í það minnsta virðast þeir sem veita ráð, þ.m.t. ríkisfulltrúar ykkar, trúa því – ef ekki, til hvers þá að gefa ráð á annað borð? Stjórnvöld ykkar bentu okkur nýlega á, eftir „atburð“ hér í Ísrael, að lönd verði að verja sig gegn herskáum öflum, en þó halda aftur af sér til að kynda ekki undir frekari óeirðir á svæðinu. Vinir þurfa ekki að semja um frið. Það þurfa óvinir hins vegar að gera , hvort sem þeir vilja það eða ekki. Það er engin hernaðarleg lausn við hryðjuverkum og einmitt þess vegna þarf að leita diplómatískra leiða. Þið verðið að skilja þjáningar og þarfir ósáttu öfgamúslimana, sem nota sprengjur fyrir sinn málstað, og gæta þess að viðbrögð séu við hæfi þannig að ofbeldishringrásin fari nú ekki úr böndunum. Þið verðið að semja þótt að verið sé að ráðast á land ykkar. Að fara fram á að friðarumræður sem byggja á að ofbeldi taki enda, er aðferð sem ekki er vænleg til árangurs. Slíkt kallar einfaldlega á frekari blóðsúthellingar. Lykillinn er að byggja upp nýja Evrópu, Evrópu sem einbeitir sér að raunveruleikanum eins og hann er á jörðu niðri. Að loka landamærum mun aðeins leiða til frekari kúgunar og reiði – þannig að það skulið þið ekki gera. Ef þið gerið árás á þá sem standa að baki árásunum og stuðningsmenn þeirra, munuð þið aðeins framlengja ófriði og stækka hringrás ofbeldis. Þið skuluð því ekki gera það. Sprengjur ykkar sem ætlaðar eru ofbeldismönnum munu eflaust skaða saklausa borgara og börn, og það mun aðeins hvetja fórnarlömb til hefnda – þannig að gagnárás er ekki rétta leiðin. Byrjið á því að lýsa yfir alhliða vopnahléi! Takið í sama streng og Lennon er hann söng „Give peace a chance!“ Ekki láta sogast inn í svarthol ofbeldis. Bindið enda á óeirðirnar. Sýnið stillingu. Best væri kannski að skipta Frakklandi í tvennt, og París í tvær borgir fyrir tvenns konar siðmenningu. Engin Frakki vogar sér hvort eð er inn í múslimsk hverfi í París, né heldur lögreglan, þannig að borgin er nú þegar tvískipt. Hver er munurinn í ættjarðarlandi ykkar? Baráttukveðjur, Ísraelska þjóðin" Já, stundum verðum við einfaldlega að horfast í augu við hræsnina í okkur sjálfum. Við megum ekki gera mismunandi kröfur til þjóða sem glíma við öfgafullan óþjóðalýð, því að á slíkt er litið sem mismunun á grundvelli þjóðernis - kynþáttamisrétti. Að allri hæðni slepptri styð ég aðgerðir Rússa, Ísraela og Frakka í baráttu sinni við öfgaöfl. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ívar Halldórsson Mest lesið Halldór 09.08.2025 Halldór Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir Skoðun Pride and Progress: Advancing Equality Through Unity Clara Ganslandt Skoðun Lagaleg réttindi skipta máli Kári Garðarsson Skoðun Baráttan um þjóðarsálina Alexandra Briem Skoðun Hver rödd skiptir máli! Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Til ritstjóra DV Ívar Halldórsson Skoðun Sumarorlofið fór í baráttuna fyrir barni - er það sanngjarnt? Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Sjö staðreyndir í útlendingamálum Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Svargrein: Ísland á víst að íhuga aðild að ESB Ágúst Ólafur Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar Skoðun Baráttan um þjóðarsálina Alexandra Briem skrifar Skoðun Lagaleg réttindi skipta máli Kári Garðarsson skrifar Skoðun Pride and Progress: Advancing Equality Through Unity Clara Ganslandt skrifar Skoðun Hver rödd skiptir máli! Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Sýnum þeim frelsið Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfing skiptir öllu máli í Parkinson Helga G Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hinsegin í vinnunni Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við stöndum þeim næst en fáum ekki rödd Svava Bjarnadóttir skrifar Skoðun Sumarorlofið fór í baráttuna fyrir barni - er það sanngjarnt? Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisstefnan og frelsið Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Sjö staðreyndir í útlendingamálum Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar fjölbreytileikinn verður ógn: Afneitun, andstaða og ótti við hið mannlega Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Einmanaleiki: Skortir þig tengsl við þig eða aðra? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Svargrein: Ísland á víst að íhuga aðild að ESB Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Fjölbreytni í endurhæfingu skiptir máli Hólmfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Sumarfríinu aflýst Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Úr skotgröfum í netkerfin: Netárásir á innviði Vesturlanda Ýmir Vigfússon skrifar Skoðun Fordómar gagnvart hinsegin fólki – Reynslusaga Geir Gunnar Markússon skrifar Skoðun „Er allt í lagi?“ Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Göngum í Haag hópinn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Kirkjuklukkur hringja Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Gerir háskólanám þig að grunnskólakennara? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð skapar ekki frið Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Íslenska stóðhryssan og Evrópa Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvammsvirkjun – Skyldur ráðherra og réttur samfélagsins Eggert Valur Guðmundsson skrifar Skoðun Norska leiðin er fasismi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Um mýkt, menntun og von Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Höfum alla burði til þess Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tímabær rannsókn dómsmálaráðuneytisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar
Skoðun Sumarorlofið fór í baráttuna fyrir barni - er það sanngjarnt? Sigríður Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Þegar fjölbreytileikinn verður ógn: Afneitun, andstaða og ótti við hið mannlega Haukur Logi Jóhannsson skrifar