Íslenski boltinn

Tokic framlengdi við Víking

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tokic fagnar hér Pepsi-deildarsætinu.
Tokic fagnar hér Pepsi-deildarsætinu. mynd/helgi kristjánsson
Nýliðar Víkings frá Ólafsvík greindu frá því í dag að þeir væru búnir að framlengja við Hrvoje Tokic til eins árs.

Þessi strákur kom til félagsins í júlí síðastliðnum og spilaði frábærlega. Skoraði ein 12 mörk í 8 leikjum og hjálpaði liðinu mikið við að komast upp í Pepsi-deildina.

Þetta er mjög góð tíðindi fyrir Ólsara enda Tokic hörkuleikmaður.

Það er von á honum til landsins þann 1. febrúar næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×