Mjög, mjög gott Brynhildur Björnsdóttir skrifar 11. nóvember 2015 11:30
Bækur Þýska húsið Arnaldur Indriðason Vaka-Helgafell Kápa Ragnar Helgi Ólafsson Ég gleymi aldrei tilfinningunni þegar ég las Mýrina, volga úr fyrstu prentun, og gerði mér grein fyrir því að Íslendingur gæti í alvöru skrifað glæpasögur sem væru jafngóðar og það sem mér fannst best og merkilegast í þeim geira í útlöndum. Þetta var áður en Mýrin var seld til erlendra útgefenda, áður en Arnaldur varð heimsfrægur, það var engin staðfesting önnur en þessi tilfinning: að bera kennsl á eitthvað mjög, mjög gott. Síðan hefur Arnaldur skrifað átján glæpasögur og svo sannarlega sigrað heiminn og rutt brautina fyrir aðra íslenska höfunda sem vildu feta glæpabrautina. Ég viðurkenni að mér finnst ekki allar þessar átján hafa til að bera þau gæði sem Mýrin hafði til að bera, en nokkrar komast nærri því. Þýska húsið gerist á gríðarlega spennandi tímabili í sögu Íslendinga. Árið er 1941, breski herinn er tiltölulega nýkominn til bjargar og er þegar á leið burtu aftur til að rýma fyrir þeim bandaríska. Reykjavík er að breytast úr litlu þorpi í höfuðborg, framandi gestir og með þeim ný tækifæri, peningar og atvinna og fólk flykkist úr sveitinni til að freista gæfunnar og verða borgarfólk með fólki. Sagan byrjar á því að farandsölumaður flýtir sér heim úr sölutúr því hann hefur af því spurnir að stúlkan hans sé farin að vera með hermönnum, nánast eins og að á meðan hann brá sér frá í nokkra daga hafi allur heimurinn breyst. Svona er andrúmsloftið í Reykjavík í sögunni, enginn veit hvaðan á hann eða hana stendur veðrið, allt er nýtt og framandi, meira að segja rannsóknarlögreglumennirnir eru reynslulitlir, ungir og óharðnaðir í heimi þar sem morð er framið með skammbyssu en ekki ljá. Flóvent og Thorson, sem dyggir lesendur Arnaldar kannast við úr bókinni Skuggasund, eru leiddir hér saman í fyrsta sinn til rannsóknar á morði í lítilli leiguíbúð í Reykjavík þar sem grunur leikur á að morðvopnið sé úr fórum hinna erlendu gesta. Rannsóknin snertir á brýnustu málum þessa tíma, ástandinu, flutningunum úr sveit í borg, nasistum og nútíma sem skellur á af óþægilegum krafti. En bókin tekur einnig á sígildum viðfangsefnum allra tíma: valdi og kúgun, sambandi foreldra og barna og því að horfast í augu við sjálfan sig og það sem maður er. Persónurnar eru að vanda vel skrifaðar og marglaga en ég hefði viljað sjá konurnar skrifaðar í fleiri víddum, þar sem þær verða nokkuð klisjukenndar. Hér er eitt tálkvendi sem ætlar sér að láta drauma sína rætast, sama hvað það kostar, ein hugsjóna- og ástardrifin klappstýra vonds vísindamanns og ein syrgjandi móðir sem við sjáum aðeins í stutta stund en er þó heilsteyptust þessara kvenna. Þýska húsið er ein af betri bókum Arnaldar. Honum tekst vel að lýsa borg í örum vexti, svo örum að fólk nánast hættir að rata, fólki sem stendur á þröskuldi nútíma sem það er mismunandi í stakk búið til að taka þátt í og svo er þarna spennandi glæpaflétta í hryggjarstykkinu sem tekur ýmsar óvæntar sveigjur og heldur lesandanum við efnið allt fram á síðustu síðu. Mjög, mjög gott.Niðurstaða:Spennandi og feiknavel skrifuð þar sem bæði samfélagslýsingar og glæpamál halda lesandanum kirfilega við efnið. Með betri bókum Arnaldar.
Menning Mest lesið Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Lífið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Lífið Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Settu tærnar upp í loft og fengu knús Menning „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Lífið Hundrað skvísur blómstruðu saman Lífið Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Lífið samstarf Fleiri fréttir KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Kjánalegar klisjur og kærulausir kappar Misheppnaður mömmuleikur Hugljúft en stutt gaman Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Hvað eiga frægasti djasstónlistarmaður heims og íslensk kráka í Feneyjum sameiginlegt? Öskrað á of litlu sviði Lengsti klukkutími ævinnar Sjá meira