Kendall Jenner með bleikt hár í Vogue Ritstjórn skrifar 22. október 2015 11:30 Rio Uribe og merkið hans Gypsy Sport
Síðustu tólf ár hefur Vogue valið tíu hönnuði sem þeim finnst bera af, til þess að taka þátt í CFDA/Vogue Fashion Fund verkefninu. Þar fá hönnuðirnir tilsögn og aðstoð frá fagfólki bæði í hönnun og viðskiptum við að þróa og framleiða línuna sína. Í lokin stendur einn uppi sem sigurvegari og fær viðkomandi háa peningaupphæð í verðlaun. Meðal þeirra sem hafa sigrað þessa keppni síðustu ár eru Alexander Wang, Proenza Schouler, Tabitha Simmons og Prabal Gurung.Chris GelinasTil að kynna þessa tíu hönnuði sem taka þátt, var gerður myndaþáttur fyrir Vogue, þar sem fyrirsætan Kendall Jenner sat fyrir ásamt Nick Jonas, Gigi Hadid og Jaden Smith. Myndirnar tók Annie Leibowitz. Í þættinum sést hversu ólíkir hönnuðirnir eru, og bregður Kendall sér í ólík hlutverk á hverri mynd. Á einni þeirra skartar hún bleiku hári og þykir hún minna á No Doubt söngkonuna Gwen Stefani. Sigurvegarinn verður svo tilkynntur þann 2. nóvember. Með hönnuðinum Jonathan Simkhai og Gigi HadidDavid HartHönnuðirnir Raul Arevalo og Brad Schmidt ásamt Nick JonasBecca McCharen
Glamour Tíska Mest lesið Gleymdu svarta litnum, hvítur er að taka yfir Glamour Kraftgallinn er kominn aftur Glamour Inga leiðir byltingu í tískuheiminum Glamour Hadid og Hutton saman á tískupallinum Glamour Flip flop skór með hæl Glamour Marc Jacobs lokaði tískuvikunni í New York með hvelli Glamour Er Mondler í alvöru par? Glamour Bestu tískuaugnablik ársins 2016 Glamour Geimverur í Gucci: Nýjasta herferð tískuhússins gerist í geimnum Glamour Passa sig Glamour