Fótbolti

Freyr: Leikmenn okkar eiga meiri virðingu skilið en þetta

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Freyr Alexandersson.
Freyr Alexandersson. vísir/vilhelm
„Ég er sáttur að ná að klára þetta,“ segir Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, við Vísi um 4-0 sigurinn á Makedóníu í undankeppni EM 2017 í dag.

Íslensku stelpurnar skoruðu mörkin fjögur á fyrsta hálftímanum á rennblautum vellinum í Skopje sem var líkari vatnaveröld en fótboltavelli.

„Ég hef ekki stýrt leik við erfiðari aðstæður. Vallaraðstæður voru rosalegar og grasið sjálft hræðilegt. Við þurfum að breyta leikáætlun okkar,“ segir Freyr.

„Við viljum reyna að halda aðeins í boltann og ná upp tempó og hröðum sendignum en við fórum bara í að koma honum beina leið fram og refsa á síðasta þriðjungi vallarins. Það var það eina sem var í goði.“

Kvennaboltinn sumstaðar ekki kominn lengra en þetta

Landsliðsþjálfarinn var eðlilega mjög ósáttur við vallaraðstæður í dag, en pollar voru úti um allt á vellinum og stoppaði boltinn oft þegar reynt var að senda hann á milli manna.

„Ég spyr mig að því hvort þessi leikur hefði hreinlega farið fram í karlafótbolta. Völlurinn drenaði ekki neitt og menn reyndu ekki einu sinni að skafa mestu pollana af vellinum. Því miður er kvennafótboltinn sumstaðar ekki kominn lengra en þetta“ segir Freyr ósáttur.

„Það er klárt að Guðrún Inga [Sívertsen, varaformaður KSí] og Klara [Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ] fara í þetta mál og ég treysti þeim fyrir því. Okkar stelpur eiga meiri virðingu skilið en þetta.“

Ekki vallarklukka á vellinum

Freyr var samt ánægður með hvernig stelpurnar okkar tækluðu verkefnið. „Miðað við allt fannst mér flott hvernig stelpurnar nálguðust þetta með krafti. Þær sýndu flott viðhorf og kláruðu þetta bara í fyrri hálfleik. Þær létu þetta ekkert pirra sig,“ segir Freyr, en það var ekki einu sinni vallarklukka á vellinum.

„Ég var bara með úr á höndinni og þurfti að garga hvað var mikið búið. Þetta er náttúrlega ekki hægt, segir Freyr.

Þjálfarinn segist sáttur með að allir leikmennirnir sluppu heilir og án guls spjalds frá leiknum, en hann vildi sjá fleiri mörk.

„Ég er óánægður með færanýtinguna. Til að fara úr því að vera gott lið í frábært lið verðum við að nýta færin betur. Við þurfum að finna lausnir á þessu þannig það er bara vinna framundan fyrir leikinn gegn Slóveníu um helgina,“ segir Freyr Alexandersson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×