Glamour

MTV EMA: Verst klæddu stjörnurnar

Ritstjórn skrifar
Ed Sheehan og Ruby Rose, kynnar hátíðarinnar.
Ed Sheehan og Ruby Rose, kynnar hátíðarinnar. Glamour/Getty
MTV European Music Awards voru haldin á Ítalíu í gær. Þangað mættu helstu stjörnurnar, en því miður var þetta ein verst klædda hátíðin til þessa.

Annar kynnir kvöldsins, leikkonan og fyrirsætan Ruby Rose, var áberandi verst klædd að mati ritstjórnar Glamour.

En hvað finnst lesendum um þetta?

Þessi dama heitir Talia Storm og hana vantar hárgreiðslumesistara, og mögulega stílista líka.
Hailey Baldwin mætti í þessu. Flott hjá henni.
Amanda Cerny ákvað að sleppa framhlutanum á kjólnum sínum.
Stelpurnar í Fifth Harmony. Æj, við vitum ekki með þetta.
Eins og okkur er vel við Ruby Rose, þá er stílistanum hennar það greinilega ekki.
...meinilla við hana! Hvað er þetta? Búningur úr Troy?
Duran Duran mættu hressir. Með blásið hár, leopard og hneppt niður á bringu.


×