Fótbolti

Stelpurnar geta náð sinni bestu byrjun í átta ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stelpurnar fagna hér marki Dagnýjar Brynjarsdóttur á móti Hvíta Rússlandi.
Stelpurnar fagna hér marki Dagnýjar Brynjarsdóttur á móti Hvíta Rússlandi. Vísir/Vilhelm
Íslenska kvennalandsliðið getur unnið þriðja leikinn í röð í undankeppni EM 2017 í kvöld þegar stelpurnar spila við Slóvena í Lendava.

Íslensku stelpurnar hafa þegar lagt Hvít-Rússa og Makedóna að velli í baráttunni um laus sæti á Evrópumótinu í Hollandi og hafa sex stig og markatöluna 6-0 eftir tvo leiki.

Íslenska kvennalandsliðið hefur ekki unnið tvo fyrstu leiki sína í undankeppni síðan sumarið 2007 þegar liðið vann fyrstu þrjá leiki sína í undankeppni EM í Finnlandi 2009.

Sú undankeppni varð á endanum söguleg enda komust íslensku stelpurnar þá inn á stórmót í fyrsta sinn en þetta var fyrsta stórmót íslensks A-landsliðs.

Fyrir átta árum vann íslenska liðið sigra á Grikkjum, Frökkum og Serbum í fyrstu þremur leikjum sínum í undankeppninni en tveir síðarnefndu leikirnir fóru fram á Laugardalsvellinum.

Aeðins fjórir leikmenn í íslenska hópnum í dag komu nálægt einhverjum þessara þriggja sigurleikja fyrir rúmum átta árum síðan.

Margrét Lára Viðarsdóttir byrjaði alla leikina þrjá og skoraði líka mark í þeim öllum. Guðbjörg Gunnarsdóttir var í byrjunarliðinu í fyrsta leiknum en á bekknum í hinum tveimur. Hólmfríður Magnúsdóttir missti af fyrsta leiknum en kom inná sem varamaður í hinum tveimur. Sandra Sigurðardóttir var síðan varamarkvörður í fyrsta leiknum.   

Leikur Íslands og Slóveníu hefst klukkan 17.00 að íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu á Vísi.



Fyrstu þrír leikir íslenska kvennalandsliðsins í síðustu undankeppnum:

EM 2009 - 3 sigurleikir (Markatala, 9-0)

- Grikkland-Ísland 0-3

- Ísland-Frakkland 1-0

- Ísland-Serbía 5-0

HM 2011 - 2 sigrar, 1 tap (17-2)

- Ísland-Serbía 5-0

- Ísland-Eistland 12-0

- Frakkland-Ísland 2-0

EM 2013 - 2 sigrar, 1 jafntefli (9-1)

- Ísland-Búlgaría 6-0

- Ísland-Noregur 3-1

- Ísland-Belgía 0-0

HM 2015 - 2 sigrar, 1 tap (3-3)

- Ísland-Sviss 0-2

- Serbía-Ísland 1-2

- Ísrael-Ísland 0-1

EM 2017 - 2 sigrar og 3. leikurinn í kvöld (6-0)

- Ísland-Hvíta Rússland 2-ö

- Makedónía-Ísland 0-4

- Slóvenía-Ísland (Í kvöld)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×