Umfjöllun: Slóvenía - Ísland 0-6 | Stelpurnar fullkomnar í Slóveníu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. október 2015 18:45 Harpa Þorsteinsdóttir átti stórleik í kvöld. vísir/vilhelm
Ísland er í kjörstöðu eftir fyrstu þrjá leiki sína í undankeppni EM 2017 en stelpurnar okkar eru á toppi riðilsins með fullt hús stiga og markatöluna 12-0. Stelpurnar voru afar sannfærandi í 6-0 sigri á Slóveníu ytra í kvöld. Stjarna leiksins var Harpa Þorsteinsdóttir sem skoraði tvö marka Íslands, lagði upp eitt og fékk aukaspyrnu sem gaf sér eitt til viðbótar. Dagný Brynjarsdóttir kom Íslandi á bragðið snemma í leiknum en þá var komið að þætti Hörpu. Hún skoraði næstu tvö mörk leiksins, á 20. og 65. mínútu, en Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fjórða markið úr aukaspyrnu sem Harpa fékk. Harpa lagði svo upp fimmta markið fyrir varamanninn Söndru Maríu Jessen á 80. mínútu. Dagný skoraði sitt annað mark á 86. mínútu og stuttu síðar var víti dæmt á Slóveníu. Harpa tók vítið og freistaði þess að innsigla þrennuna en Sonja Cevnik varði spyrnu hennar. Það var þó svekkjandi að Hólmfríður Magnúsdóttir, sem lék sinn 100. landsleik í dag, þurfti að fara af velli vegna meiðsla um miðjan fyrri hálfleik þegar meiðsli tóku sig upp hjá henni. Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður, þurfti einnig að fara af velli vegna meiðsla í síðari hálfleik.Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sitt 75. landsliðsmark í kvöld.Vísir/VilhelmSkipulagið til fyrirmyndar Frammistaða Íslands í fyrri hálfleik var sérstaklega góð en Ísland sýndi mikinn aga og gott skipulag í leik sínum, sem gaf af sér beittan og hættulegan sóknarleik. Slóvenía kom þó inn í síðari hálfleikinn af ágætum krafti og skapaði sér sín bestu færi þá, á meðan að staðan var enn 2-0. En þegar Harpa jók muninn í 3-0 var ljóst í hvað stefndi og gengu stelpurnar okkar einfaldlega á lagið og kláruðu leikinn af miklum krafti. Ísland hefur áður brennt sig á því að tapa mikilvægum leik í Slóveníu. Það gerðu þær fyrir átta árum síðan, á leið sinni á EM 2009 í Finnlandi sem var fyrsta stórmótið sem A-landslið kvenna tók þátt í. Það var greinilegt frá fyrstu mínútu að stelpurnar ætluðu ekki að gera önnur eins mistök. Stelpurnar tóku völdin í leiknum um leið en eftir aðeins 27 sekúndur fékk Dagný frábær skallafæri fyrir miðju marki Slóvena eftir sendingu Hörpu. En skallinn sigldi framhjá markinu.Dagný Brynjarsdóttir skoraði tvö mörk í kvöld.Vísir/VilhelmDagný braut ísinn Þetta gaf þó tóninn og það var viðeigandi að Dagný hafi bætt fyrir mistökin strax í upphafi með því að koma Íslandi yfir á 15. mínútu. Markið var einkennandi fyrir leik íslenska liðsins - uppbyggingin var frábær og samspilið gott allt frá aftasta manni til þess fremsta. Margrét Lára hafði tekið niður langa sendingu Önnu Bjarkar niður og lagt út á Söru Björk, sem stakk svo boltanum inn á Dagnýju. Selfyssingurinn átti mikið eftir en gerði allt rétt og kom boltanum laglega í markið. Fimm mínútum síðar jók Harpa forystu Íslands í 2-0. Margrét Lára sýndi kraft sinn þegar hún renndi sér á eftir boltanum við hliðarlínuna og kom honum á Hörpu. Móttakan var frábær hjá Hörpu, sem lék á einn varnarmann og kom sér þannig í gegn. Eftirleikurinn var auðveldur. Harpa fékk tvö góð færi til viðbótar í fyrri hálfleik en Ísland náði ekki að bæta við forystu sína í fyrri hálfleik.Hólmfríður Magnúsdóttir lék sinn 100. landsleik í kvöld en fór af velli vegna meiðsla.Vísir/VilhelmÞriðja markið nánast úr engu Stærsta verkefni Íslands í síðari hálfleik var því að halda einbeitingu en snemma leit út fyrir að það myndi ekki ganga eftir. Mateja Zver, fyrrum leikmaður Þórs/KA átti sendingu inn í teig á 52. mínútu og Kristina Erman, sem var dauðafrí á fjarstöng eftir klaufalegan varnarleik Íslands, var enn meiri klaufi að hafa ekki nýtt færið betur en skot hennar fór framhjá Guðbjörgu og íslenska markinu. Tjasa Tibaut fékk svo tvö ágæt færi eftir það en Guðbjörg reyndist vandanum vaxin. Hættumerkin voru þó til staðar og því var þriðja mark Íslands, sem Harpa skoraði á 65. mínútu, afar kærkomið. Harpa skapaði markið nánast úr engu. Hún fékk sendingu inn á teig úr innkasti, sneri af sér varnarmann og skoraði með góðu skoti. Virtist einfalt en framkvæmdin var frábær. Harpa fékk svo aukaspyrnu eftir að hún var nánast sloppin í gegn aðeins fjórum mínútum síðar en Margrét Lára skoraði fjórða mark Íslands úr henni. Skot Margrétar Láru hafði reyndar viðkomu í Zver sem var nóg til að koma Cevnik í marki Slóveníu úr jafnvægi. Eftirleikurinn var auðveldur. Harpa kórónaði frábæran leik sinn þegar hún gaf stoðsendingu á Söndru Maríu Jessen sem skoraði tíu mínútum fyrir leikslok. Dagný skoraði svo sjötta markið á 86. mínútu og var Ísland hreinlega óheppið, sem fyrr segir, að bæta ekki enn fleiri mörkum við á viðburðarríkum lokamínútum leiksins. Niðurstaðan engu að síður virkilega öflugur sigur Íslands sem heldur inn í vetrarfríið með frábært veganesti. Næsti leikur Íslands í undankeppninni verður gegn Hvíta-Rússlandi ytra þann 12. apríl.
Íslenski boltinn Mest lesið Guðmundur svekktur eftir sniðgöngu: „Finnst þetta skammarlegt“ Handbolti Skipti Orra inn og út á nokkrum mínútum: „Óásættanlegt“ Fótbolti City fer með góða forystu inn í seinni leikinn gegn Newcastle Fótbolti Segir Gumma Tóta á leið heim úr atvinnumennsku Fótbolti Þrír af Strákunum okkar í upptalningu á þeim bestu fyrir EM Handbolti Hafþór hrósar læknum „Steraleikanna“ og segist treysta þeim alveg Sport Tryggvi lét til sín taka er Bilbao tyllti sér í toppsætið Körfubolti Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Íslenski boltinn Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Enski boltinn Fengu símtal frá brjáluðum Gumma Gumm um niðdimma nótt Handbolti Fleiri fréttir Benóný kom inn á og breytti leiknum Skipti Orra inn og út á nokkrum mínútum: „Óásættanlegt“ City fer með góða forystu inn í seinni leikinn gegn Newcastle Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Carrick tekinn við Manchester United Segir Gumma Tóta á leið heim úr atvinnumennsku Simeone baðst afsökunar á rifrildinu við Vinícius Junior Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Tveir ungir varnarmenn til FH Uppgjöfin fyrir Mbappé hafi markað endalok Alonso Segja að Real Madrid vilji fá Jürgen Klopp Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark en var sakaður um vanvirðingu Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Litla liðið í París sló út stórveldi PSG Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Mikael Egill spilaði nær allan leikinn í sterkum sigri Liðsfélagi Ronaldo missti stjórn á skapi sínu og sló andstæðing Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Davíð Kristján keyptur til Grikklands Myndi ekki neita ef Carrick byði honum í sitt teymi Segir að Brasilía þurfi á Neymar að halda Alonso látinn fara frá Real Madrid Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Búast við því að Carrick verði kynntur hjá United innan tíðar Katarar vilja halda fyrsta HM félagsliða hjá konunum Mátti ekki koma inn á vegna þess að hún var með eyrnalokk Hannover staðfestir kaupin á Stefáni Teiti Sjá meira