Íslenski boltinn

Eru þrjú ár í næsta Íslandsmeistaratitil hjá FH-ingum?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Rúnar Halldórsson býður Gunnar Nielsen velkominn í FH.
Jón Rúnar Halldórsson býður Gunnar Nielsen velkominn í FH. Vísir/Stefán
Þetta verður í þriðja skiptið á sex árum sem FH-ingar skipta um markvörð hjá Íslandsmeistaraliði sínu en þeir gerðu það einnig eftir Íslandsmeistaratitlana 2009 og 2012. Í báðum tilfellum þurftu nýju markverðirnir að bíða í þrjú ár eftir að vinna Íslandsmeistaratitilinn með FH-liðinu.

Það er einnig þannig að það lið sem hefur skipt um aðalmarkvörð undanfarin þrjú tímabil hefur misst Íslandsmeistaratitilinn sumarið eftir. Það gerðist hjá Stjörnunni 2014 (Ingvar Jónsson fór í norskt lið), KR 2013 (Hannes Þór Halldórsson fór í norskt lið) og FH 2012 (Gunnleifur Gunnleifsson fór í Breiðablik).

Samkvæmt þessum hefðum eru ekki miklar líkur á því að FH-ingar verji Íslandsmeistaratitilinn sumarið 2016 þótt það sé erfitt að veðja á móti þessum magnaða leikmannahópi Hafnarfjarðarliðsins.

Íslandsmeistarar 2009 - markmannsskipti - unnu næst 2012

Daði Lárusson var búinn að vera aðalmarkvörður FH-liðsins í meira en áratug og þáttakandi í fyrstu fimm Íslandsmeistaratitlum félagsins.

FH-ingar keyptu landsliðsmarkvörðinn Gunnleif Gunnleifsson af HK eftir tímabilið og Daði Lárusson var leystur undan samningi. Daði samdi síðan við hitt Hafnarfjarðarliðið og spilaði með Haukum í Pepsi-deild karla 2010.

Á fyrstu tveimur tímabilum Gunnleifs með FH endaði liðið í 2. sæti (2010 og 2011) en FH varð síðan Íslandsmeistari haustið 2012.

Íslandsmeistarar 2012 - markmannsskipti - unnu næst 2015

Gunnleifur Gunnleifsson varð Íslandsmeistari á sínu þriðja ári með FH þar sem hann hélt tíu sinnum hreinu og fékk á sig 1,0 mark að meðaltali í leik.

Gunnleifur gerði ekki nýjan samning við Hafnarfjarðarliðið heldur samdi frekar til þriggja ára við Breiðablik.

Daði Lárusson sneri aftur til FH eftir þriggja ára dvöl hjá nágrönnunum en Heimir Guðjónsson veðjaði á varamarkvörð Gunnleifs, Róbert Örn Óskarsson.

Á fyrstu tveimur tímabilum Róberts Arnar sem aðalmarkvarðar FH endaði liðið í 2. sæti (2013 og 2014) en FH varð síðan Íslandsmeistari í ár.

Íslandsmeistarar 2015 - markmannsskipti - vinna næst 2018?

Róbert Örn Óskarsson varð Íslandsmeistari á sínu þriðja ári sem aðalmarkvörður FH þar sem hann hélt fimm sinnum hreinu og fékk á sig 1,2 mörk að meðaltali í leik.

FH samdi í gær við færeyska landsliðsmarkvörðinn Gunnar Nielsen sem lék með Stjörnunni í sumar.

Gunnar Nielsen mætir reynslunni ríkari næsta sumar en það verður annað sumarið í röð þar sem hann ver mark liðs í titilvörn.

Saga síðustu ára segir hins vegar að hann verði ekki Íslandsmeistari fyrr en sumarið 2018.


Tengdar fréttir

Gunnar: Samkeppni er öllum holl

Gunnar Nielsen segist vera klár í samkeppni við Róbert Örn Óskarsson um markvarðarstöðuna hjá FH. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið og segist skilja við Stjörnuna í góðu. "Þetta var bara ákvörðun sem knattspyrn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×