Grænlenskir stóriðjudraumar á ís ingvar haraldsson skrifar 14. október 2015 09:15 Efnahagskreppa hefur verið á Grænlandi síðustu ár og landsframleiðsla dregist saman um ríflega tvö prósent. Hér hefur þvottur verið hengdur til þerris í Kulusuk. Fréttablaðið/pjetur
Vonir Grænlendinga um tekjur af vinnslu málma og olíu eru í biðstöðu vegna mikilla verðlækkana á heimsmarkaði. Vonir hafa staðið til að nýting náttúruauðlinda gæti staðið undir sjálfstæði frá Danmörku.Pétur ÁsgeirssonÁrlegt fjárframlag Dana til Grænlands nam 73 milljörðum íslenskra króna á síðasta ári eða um 30 prósentum af landsframleiðslu. „Með hverju árinu hafa þeir meiri þörf fyrir nýjar tekjur af öðru en framlaginu frá Danmörku því að þjóðin er að eldast og það eru alltaf fleiri sem þurfa stuðning hins opinbera,“ segir Pétur Ásgeirsson, aðalræðismaður Íslands í Nuuk. Þá munu allar nýjar tekjur Grænlendinga af námavinnslu hafa í för með sér að framlag Dana lækkar sem nemur helmingi tekjuaukans. Samdráttur hefur verið í grænlensku efnahagslífi undanfarin ár. Landsframleiðsla dróst saman um 0,3 prósent árið 2012, 1,9 prósent árið 2013 og stóð í stað í fyrra. Pétur segir að árið í ár líti betur út heldur en undanfarin ár m.a. vegna mikils uppgangs í byggingariðnaði, einna helst í Nuuk þar sem hann er búsettur. Gert er ráð fyrir 65 milljóna danskra króna halla á fjárlögum næsta árs, um 1,2 milljörðum íslenskra króna, auk þess sem ráðast á í skattahækkanir og aðhaldsaðgerðir.Kuupik KleistKuupik Kleist, fyrrverandi formaður landstjórnar Grænlands, segir að auk lágs verðs á hrávöru standi skortur á menntun og innviðum efnahagsuppgangi á Grænlandi fyrir þrifum. Kleist verður hér á landi á ráðstefnu Hringborðs Norðurslóða í Hörpu um helgina. Um helmingur ungmenna hættir í námi eftir grunnskóla að sögn Kleists. Þetta komi sérstaklega illa við unga karlmenn, á aldrinum 15-29 ára. Störf í hefðbundnum atvinnugreinum á borð við veiði sé að hverfa en störfin sem séu að skapast séu fyrst og fremst skipuð konum. Atvinnuleysi á Grænlandi var 10,1 prósent árið 2013. „Grænland er í samkeppni við önnur ríki heimsins á sviði vinnslu hrávara,“ bendir Kleist á. Ætli nýir aðilar að fara í atvinnuuppbyggingu fyrir utan byggðir þurfa þeir að byggja vegi, flugvelli eða hafnir til viðbótar við þá uppbyggingu sem þeir þyrfti að fara í á öðrum sviðum. Svend Hardenberg, stofnandi og stjórnarformaður Greenland Invest, segir að til að vinna bug á þessum vanda sé nauðsynlegt að fá erlenda fjárfesta til að koma með fjármagn til Grænlands. Fjárfestar viti hins vegar almennt lítið um landið og séu því hræddir við að fjárfesta þar.Svend Hardenberg„Grænland er utan við hinn hefðbundna viðskiptaheim. Þó að Grænland sé stöðugt hagkerfi og lýðræðisríki horfa bankar og fjárfestingarsjóðir ekki af alvöru á Grænland sem nýtt fjárfestingatækifæri,“ segir Hardenberg. Þá séu vextir og lánskjör sem Grænlendingum bjóðist stór hindrun fyrir uppbyggingu innviða. Danskir lífeyrissjóðir vilji til að mynda ekki fjárfesta á Grænlandi nema danska ríkið eða grænlenska landstjórnin gangist í ábyrgðir fyrir fjárfestingum þeirra á Grænlandi. Pétur bendir á að hugmyndir séu um að byggja og stækka flugvelli á nokkrum stöðum á Grænlandi til að efla ferðamensku í landinu enda séu aðeins tveir millilandaflugvellir á Grænlandi þótt flogið sé milli Grænlands og Íslands frá fleiri stöðum. Pétur segir Grænlendinga horfa til Íslands um möguleika á aukinni ferðamennsku sem sé lítil í landinu.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fleiri fréttir Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira