Íslenski boltinn

Lokaþáttur Pepsi-markanna í opinni dagskrá á Vísi og Stöð 2 Sport annað kvöld

Hörður verður á sínum stað á morgun en hann fær alla sérfræðingana til þess að gera upp mótið.
Hörður verður á sínum stað á morgun en hann fær alla sérfræðingana til þess að gera upp mótið. Vísir/Pjetur
Lokaþáttur Pepsi-markanna verða í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport og í beinni útsendingu á Vísi á morgun eftir að lokaumferðinni lýkur sama dag.

Um er að ræða þriggja tíma lokaþátt en þeir munu byrja á því að fara yfir lokaumferðina áður en farið er í uppgjör á deildinni í sumar.

Góðir gestir munu líta við, lið ársins tilkynnt sem og verðlaun afhent fyrir besta leikmanninn, besti ungi leikmaðurinn, besti dómari sumarsins, stuðningsmenn ársins og fleira.

Þá verða umdeildustu atvikin skoðuð, hressilegustu ummælin, besta dýfan og hvaða leikmaður olli mestu vonbrigðunum.

Það verður heilmikið fjör í Pepsi-mörknum annað kvöld en útsending hefst klukkan 20.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×