Orð, tónlist og líkamleg tjáning í Hafnarborg Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 8. október 2015 14:30 Kristín Þóra sinnir jöfnum höndum hlutverkum flytjanda, tónskálds og spunaleikara.
Kristín Þóra Haraldsdóttir, víóluleikari og tónskáld, flytur nýja útfærslu tónleikhúsverksins Orðin eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur tónskáld í Hafnarborg á sunnudaginn, 11. október. Verkið er unnið upp úr ljóðabók Lindu Vilhjálmsdóttur, sem kom út árið 2000. Í verkinu fléttast saman orð, tónlist og líkamleg tjáning, þar sem sjónrænir þættir verksins hafa áhrif á merkingu orðanna og þróast áfram við hvern flutning. Verkið er tæp klukkustund í flutningi. Kristín Þóra Haraldsdóttir kemur víða við í nálgun sinni að tónlist og sinnir jöfnum höndum hlutverkum flytjanda, tónskálds og spunaleikara. Hún kemur reglulega fram með hljómsveitum, kammersveitum, söngvaskáldum og spunaleikurum, ásamt því að hafa starfað með fjölda hópa sem tengjast líkamsleikhúsi og gjörningum. Orðin er fyrsta atriðið á nýju starfsári tónleikaraðarinnar Hljóðön í Hafnarborg sem er tileinkuð tónlist frá 20. og 21. öldinni.Almennt miðaverð er kr. 2.500, en 1.500 fyrir eldri borgara og námsmenn.
Tónlist Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira