Fótbolti

Kvennalandsliðið á allra vörum

mynd/ksí
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu sneri í dag bökum saman í baráttunni gegn einelti. Af því tilefni færði Landsbankinn öllum leikmönnum landsliðsins glæsilegt Á allra vörum-varasett, en bankinn er bakhjarl bæði landsliðsins og landssöfnunarinnar. *

Kynningar- og fjáröflunarátak Á allra vörum gegn einelti og fyrir bættum samskiptum meðal barna og ungmenna stendur nú sem hæst en það nær hápunkti með landssöfnun á Rás 2 og í sjónvarpinu föstudaginn 25. september.

 

Landsliðskonurnar eru mjög stoltar af því að styðja baráttu Á allra vörum gegn einelti – utan vallar sem innan. Þær verða í eldlínunni á Laugardalsvelli á þriðjudag þegar þær mæta Hvíta-Rússlandi í fyrsta leik sínum í undanriðli EM.

 

Markmið söfnunarinnar er að opna samskiptasetur þar sem aðstandendur í eineltismálum geta fengið ráðgjöf og þjónustu frá fagaðilum. Samskiptasetrið verður sett á stofn í samvinnu við samtök fagfólks á sviði uppeldis-, lýðheilsu- og menntunarfræða sem nefnast Erindi.

Þau hafa það markmið og hlutverk að miðla fræðslu og skapa almenna umræðu um málefni sem varða hag barna og ungmenna á öllum skólastigum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×