Tónlist

Mammút frumsýnir nýtt myndband við Blóðberg

Stefán Árni Pálsson skrifar
vísir
Íslenska hljómsveitin Mammút frumsýnir í dag nýtt myndband við lagið Blóðberg sem er íslensk útgáfa af laginu Blood Burst.

Sunneva Ása Weisshappel og Anni Ólafdóttir unnu myndbandið með svipuðu myndefni og í ensku útgáfunni.

Sjá einnig:Böðuðu sig í alvöru kindablóði í Blood burst

Hljómsveitin er nú í óðaönn við að semja efni fyrir nýja plötu sem væntanleg er næsta vor, en nýlega gerði bandið samning við Bella Union útgáfuna í Bretlandi. Er Mammút því komin um borð í sama útgáfuskip og Fleet Foxes, The Flaming Lips, John Grant og Father John Misty.

Hér að neðan má sjá myndbandið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×