Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Grótta 22-20 | Víkingur vann nýliðaslaginn Guðmundur Marinó Ingvarsson í Víkinni skrifar 17. september 2015 21:45 Jóhann Reynir Gunnlaugsson var markahæstur Víkinga í kvöld. vísir/stefán
Víkingur lagði Gróttu 22-20 í nýliðaslag liðanna í Víkinni í 3. umferð Olís deildar karla í handbolta í kvöld. Grótta var 12-10 yfir í hálfleik. Grótta var sterkara liðið í fyrri hálfleik eftir nokkuð jafna byrjun. Gestirnir náðu mest þriggja marka forystu og virtust hafa nokkuð góð tök á leiknum. Varnarleikur beggja liða var góður en Víkingur skellti hreinlega í lás í seinni hálfleik. Það tók Gróttu tæpar sex mínútur að skora fyrsta markið eftir hlé og þó liðið hafi aftur náð tveggja marka forystu þegar 18 mínútur voru til leiksloka var vandræðagangur í sóknarleik liðsins. Magnús Gunnar Erlendsson markvörður Víkings skellti í lás eftir að Grótta náði aftur tveggja marka forystu og hélt markinu hreinu í 9 mínútur. Þá náði Víkingur tveggja marka forystu en enn var tími fyrir frekari sviptingar. Víkingur virtist ætla að kasta frá sér sigrinum því Grótta náði að jafna metin með auðveldum mörkum þegar fimm mínútur voru eftir. Upphófst æsispennandi lokakafli þar sem Víkingar voru sterkari með öfluga vörn sína sem sitt sterkasta vopn. Grótta þurfti að hafa mikið fyrir því að sjá markið og virtust leikmenn liðsins hreinlega ekki hafa trú á því að þeir kæmust í gegn. Það hjálpaði Gróttu ekki að leikmenn liðsins sóttu ítrekað inn á miðja vörn Víkinga þar sem hún er stærst og sterkust. Á sama tíma stigu leikmenn Víkings upp í sóknarleiknum og skoruðu mörkin sem skildu á milli þó að Grótta gæfi ekkert eftir í vörninni. Grótta vann alla þrjá leiki liðanna á síðustu leiktíð í 1. deildinni og því má segja að um langþráðan sigur hjá Víkingi væri að ræða. Þetta voru fyrstu stig Víkings á leiktíðinni en Grótta er sömuleiðis með tvö stig eftir þrjár umferðir. Ágúst: Margir sem vilja sanna sig„Við erum í mikilli baráttu og þurfum á stigum að halda. Ég held að það að ná að brjóta ísinn í kvöld sé mikilvægt,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Víkings. „Við vorum góðir í síðasta leik fyrir utan tíu mínútur og svo núna. Þetta var heilsteyptara hjá okkur og margir sem stigu upp.“ Gríðarleg barátta einkenndi leikinn og augljóst að bæði liðin hungraði í stigin sem voru í boði. „Það er mikill karakter í þessum strákum og hungur í að ná árangri. Það eru margir sem vilja sanna sig sem hafa komið til okkar eftir að hafa ekki fengið tækifæri hjá öðrum liðum. „Við vitum að við verum ekki með bestu handboltamenn í heimi í liðnu en við höfum lagt áherslu á að byggja upp sterka liðsheild og vinna hver fyrir annan og það skín í gegn. „Varnarleikurinn var mjög góður allan leikinn. Okkar lykill er að spila góða vörn. Við vorum agaðir sóknarlega og gerðum færri sóknarfeila og það skilar sér í að við fáum ekki mörg hraðaupphlaup á okkur,“ sagð Ágúst. Þrátt fyrir að liðið hafði tapað tveimur fyrstu leikjunum hélt liðið ró sinni í lokin þegar leikurinn var undir. „Menn voru yfirvegaðir og rólegir á boltanum. Við erum með unga stráka í bland við reynslumeiri og við treystum þeim öllum. Vonandi verðum við enn sterkari í framhaldinu.“ Gunnar: Sóknarleikurinn var mjög lélegur„Það verður að segjast eins og er að sóknarleikurinn í kvöld var mjög lélegur. Við vorum skömminni skárri í fyrri hálfleik en seinni hálfleikur var arfa lélegur,“ sagði Gunnar Andrésson þjálfari Gróttu. „Það fer margt í gegnum huga minn núna, hvað ég hefði getað prófað og annað en ég held að maður þurfi að horfa á leikinn aftur áður en maður greinir þetta.“ Grótta gerði sig seka um að sækja mikið inn á miðja vörn Víkings þar sem Ægir Hrafn Jónsson var eins kóngur í ríki sínu. „Við sækjum allt og mikið inn á miðju, inn á Ægi í raun og veru í staðin fyrir að reyna að teygja þá í sundur og fá flot á boltann og láta hann vinna vinnuna. Við vorum að gera þeim þetta allt og auðvelt. „Mér fannst við vera betri aðilinn í fyrri hálfleik en Víkingar eru seigir. Þetta voru allt hörku leikir gegn þeim í fyrra og hefðu getað farið hvernig sem er, þannig. „Við vorum ekki nógu klókir í dag. Varnarleikurinn var í lagi en við fengum tvö hraðaupphlaup í leiknum og það er mjög svekkjandi að fá bara tvo hraðaupphlaupsmöguleika í 60 mínútur verandi að spila ágætis vörn. Það er mjög svekkjandi að ná ekki að fá meira úr því,“ sagði Gunnar.
Olís-deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Sjá meira