Leika leiðilegustu og skemmtilegustu lögin Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 9. september 2015 09:00 Leiðilegustu og skemmtilegustu lögin verða leikin í Hörpu um helgina. Vísir/Pjetur „
Það er svo mikill húmor í hljómsveinni og við reynum að hafa gaman að þessu og brydda upp á einhverju nýju á hvejru ári,“ segir Jón Ólafsson hljómborðsleikari Nýdanskrar. Hljómsveitin efnir til sinna árlegu hausttónleika í Hörpu um helgina. Nú verða tónleikarnir tveir talsins, á laugardaginn verða skemmtilegustu lögin flutt og á sunnudaginn flytur hljómsveitin leiðilegustu lögin. „Flestir vilja heyra sömu lögin, það er bara þannig. Það vilja allir heyra vinsælustu lögin, skemmtilegustu lögin sem eru á safnplötum og spiluð í útvarpinu og svona,“ segir hann og heldur áfram: „Svo er náttúrulega fólk sem mætir á hverju ári og okkur langaði að auka þjónustustigið hjá okkur og bjóða upp á aðra tónleika sem væru með leiðilegustu lögunum. Lögin sem eru eiginlega aldrei spiluð í útvarpinu. Þau eru þyngri, lengri, dýrpri eða á einhvern hátt flóknari.“ Jón segir sveitina muna leika rúmlega 50 lög á þessum tvennu tónleikum. „Skemmtilegustu lögin verða á laugardeginum í stóra Eldborgarsalnum, af því það er svo skemmtilegt á laugardögum,“ segir Jón sposkur og heldur áfram: „Leiðilegustu lögin eru í minnsta salnum í Hörpu, Kaldalóni, á sunnudagskvöldið af því það er svo leiðilegt.“ Hann segir þetta fyrirkomulag þó krefjast talsverðra útskýringa af hálfu hljómsveitarmeðlima og Lífið fékk hann til að fara yfir hvaða lög sveitarinnar falli í flokk skemmtilegustu eða leiðilegustu laga sveitarinnar.Skemmtilegustu löginFlugvélar Íslendingar hafa náð að tengja all verulega við þetta lag og það er ekki langt síðan yfir 10.000 manns sungu þetta með okkur í brekkunni í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum.Nýr maður Óvenju fjörugt lag frá sveitinni. Eitt vinsælasta lagið af plötunni Diskó Berlín sem hljómsveitin sendi frá sér í fyrra. "Það er gott að dansa!"Frelsið Lag sem kom út árið 1990 á hljómplötunni Regnbogaland. Margir vísa gjarnan í texta lagsins til að lýsa líðan sinni: "Frelsið er yndislegt ég geri það sem ég vil."Þá kemur þú Gullfallegt en jafnframt dramatískt lag og texti, samt ekki leiðinlegt. Þetta náði vinsældum þegar það kom út í annað sinn, á hljómplötunni Nýdönsk & Sinfó þar sem Björn Jörundur rífur úr sér hjartað við flutninginn.Nostradamus Vinsældir þessa lags komu hljómsveitarmeðlimum töluvert á óvart á sínum tíma enda flókið í forminu með mörgum köflum. Síendurtekið viðlagið gerir þó sennilega gæfumuninn þannig að lagið fer í skemmtilega flokkinn.Leiðinlegustu löginStjörnuryk Lag og texti eftir Jón Ólafsson af plötunni Deluxe sem skaut hljómsveitinni í fremstu röð árið 1991. Náði ekki eyrum útvarpsmanna og hefur sárasjaldan verið flutt á tónleikum.Ríki konunganna Stefán Hjörleifsson, gítarleikari, er með mjög persónulegan stíl sem lagahöfundur. Þetta lag ber öll hans höfundaeinkenni og fer um víðan völl á akri tónfræðinnar. Flókið lag að spila og töluvert tormelt að auki.Leiðinlegasta lag í heimi Þetta lag verður að vera í flokk leiðinlegu laganna - þó ekki væri nema út af titlinum og yrkisefninu.Sviti Flókin útsetning á töff lagi af hljómplötunni Hunang. Það var aldrei spurning um í hvorn flokkinn þetta lag færi.Tré Eitt af fyrstu lögum Daníels. Í miklu uppáhaldi hjá mörgum en þetta er sjaldan flutt í útvarpi og hljómsveitin sennilega bara einu sinni leikið það opinberlega áður; á sjálfum útgáfutónleikum Regnbogalands. Marglaga músíktré með stofni, greinum og blöðum.Kynna Nýlundann til leiksÁ tónleikunum mun hljómsveitin einnig kynna Nýlundan. „Goggurinn á lundanum er í fánalitunum okkar. Þannig þetta er mjög eigulegt fyrir aðdáendur sveitarinnar en um er að ræða 100 tölusetta og áritaða Nýlunda,“ segir Jón um hinn nýja söluvarning sveitarinnar. „Við ákváðum að bæta lundum við af þvi þeir eru svo vinsælir í miðbænum þannig okkur fannst í raun sjálfsögð þjónusta við aðdáendur okkar að bjóða upp á lunda líka.“ En líkt og glöggir lesendur sjá eru lundinn og Daníel Ágúst, söngvari sveitarinnar með áþekkan vangasvip.
Tónlist Mest lesið Kærastinn skyndilega orðinn „pabbi“ Aldísar Lífið Fór ein í eftirpartý með Drake en segir ekki meir Lífið „Þú ert svo falleg“ Lífið Bullandi boltastemning á árshátíð Sýnar Lífið Hvernig getur kona sem er komin í tíðahvörf fundið neistann til að stunda kynlíf aftur? Lífið Kynorkan alltumlykjandi hjá óléttu óperusöngkonunni Menning Fjölgar mannkyninu enn frekar Lífið Laufey treður upp með Justin Bieber Tónlist Eiríkur og Alma selja smekklega hæð í Garðabæ Lífið „Án djóks besta kvöld lífs míns“ Lífið Fleiri fréttir Hvernig getur kona sem er komin í tíðahvörf fundið neistann til að stunda kynlíf aftur? „Þú ert svo falleg“ Djúsí Ceasar vefja sem klikkar seint Bullandi boltastemning á árshátíð Sýnar Fjölgar mannkyninu enn frekar Berjamó með sjálfum Berjakarlinum Eiríkur og Alma selja smekklega hæð í Garðabæ Fór ein í eftirpartý með Drake en segir ekki meir „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Kærastinn skyndilega orðinn „pabbi“ Aldísar Borguðu norn fyrir gott veður á brúðkaupsdaginn Fjallar ekki um eiturlyf í dýrðarljóma „Án djóks besta kvöld lífs míns“ Robert Redford er látinn Norska konungsfjölskyldan krefst breytinga á heimildarmynd Netflix Fyrst „stóru fimm“ til að hóta sniðgöngu Keyptu vistvænt hús í Garðabæ af meðlimi Sigur Rósar Fögur hæð í frönskum stíl „Hann varð fyrir gríðarlega miklum árásum úr samfélaginu“ Mægðurnar Vanda Sig og Dísa sögðu fokk við ofbeldi Salka Sól og Elísabet Jökuls mættu á frumsýningu „Komst ekki á Emmy-hátíðina en komst á bráðamóttökuna“ Staða inn á fótboltavelli sem heitir það sama og bleyjutegund Glæpasagnahöfundur nældi sér í fyrirsætu Stökkva út í sjó úr margra metra hæð og fréttamaður fékk að prófa „Áttum góða tíma og mjög ástríkt samband að mestu“ Ein sú fegursta komin á fast Drake fékk brjóstahaldarann frá Guggu í fangið Stjörnulífið: Gellurnar stóðu vaktina Lifði með fjögurra prósenta sjón án greiningar Sjá meira