One Direction halda hver í sína átt Gunnhildur Jónsdóttir skrifar 26. ágúst 2015 08:30 Seinustu mánuði hafa strákarnir haldið ótrauðir áfram þrátt fyrir að fækkað hefur í hópnum. Mynd/Getty
Eins og alþjóð veit hafa meðlimir hljómsveitarinnar One Direction staðfest fregnir þess efnis að þeir ætli að taka sér árs pásu. Á seinustu fimm árum hafa þeir tekið þátt í X-Factor, gefið út fjórar plötur, farið í sex tónleikaferðalög og gefið út þrjár tónleikamyndir. Það er því auðvelt að skilja það að strákarnir séu orðnir þreyttir, jafnvel hver á öðrum. Seinustu tónleikar þeirra í bili verða í Sheffield í október en talið er að einhverjir þeirra hefji sólóferil í kjölfarið. Þeir hófu allir ferilinn hver í sínu lagi þegar þeir mættu í áheyrnarprufur fyrir bresku útgáfu X-Factor. Þeir voru settir saman í eina hljómsveit seinna í þáttunum þar sem þeir voru ekki taldir líklegir til sigurs einir og sér. Hljómsveitin er samsett af þeim Harry Styles, Niall Horan, Liam Payne og Louis Tomlinson. Zayn Malik var áður með þeim en hann sagði skilið við sveitina fyrr á árinu vegna löngunar til þess að lifa eðlilegu lífi sem 22 ára strákur. Strákarnir hafa verið duglegir að lenda á síðum slúðurblaðana vegna persónulegra sambanda þeirra. Harry Styles hefur verið langmest áberandi af hljómsveitarmeðlimunum en hann hefur átt í ástarsambandi við ólíklegustu stúlkur. Til þess að byrja með byrjaði hann með einum af kynnum X-Factors þegar hann tók þátt í keppninni en þá var hann aðeins 17 ára en hún 31 árs. Hann byrjaði seinna með söngkonunni Taylor Swift en hún samdi lag um hann eftir að þau hættu saman sem hét „I Knew You Were Trouble“. Hann var einnig á föstu með raunveruleikastjörnunni Kendall Jenner og fyrirsætunni Cöru Delevigne. Upp á síðkastið hefur hann sést á ýmsum stefnumótum með fyrirsætum. Louis Tomlinson á von á barni með stelpu sem hann átti í stuttu sambandi við í Los Angeles eftir eitt djammið. Hann segist þó vera spenntur fyrir komu frumburðarins og verður hann eflaust frábær faðir. Liam og Niall hafa látið minna fyrir sér fara þegar kemur að persónulega lífinu. Zayn Malik var trúlofaður Perrie Edwards í tvö ár og var hún talin vera ástæðan fyrir að hann hætti í hljómsveitinni. Þau slitu hins vegar trúlofuninni í mánuðinum mörgum til mikillar furðu. Það hefur lengi verið talið að Harry yrði sá fyrsti til að hefja sólóferil en hann er talinn vera með bestu röddina og er í raun mesta stjarnan í hópnum en það verður spennandi að fylgjast með hvernig þeim mun ganga þegar þeir verða einir á báti. Það sem margir óttast er að þeim muni ganga það vel að þeir muni ekki koma saman aftur eins og þeir hafa lofað aðdáendum sínum.One Direction hreppti þriðja sætið í X-Factor árið 2011. Þeir urðu strax vinsælir í kjölfarið.Tímalína One Direction:Júlí 2010: Fóru í áheyrnarprufur hver í sínu lagi fyrir breska raunveruleikaþáttinn X-Factor. Þeir þóttu þó ekki nógu sterkir söngvarar og eftir að þeir komust ekki áfram í 12 liða úrslit sem einstaklingar ákvað Nicole Scherzinger, sem var gestadómari í þáttunum á þessum tíma, að setja þá saman í eina strákahljómsveit. Þeir enduðu svo í þriðja sæti í keppninni.Janúar 2011: Í byrjun ársins hófu þeir upptöku á fyrstu breiðskífu sinni. Þeir tóku hana upp í Svíþjóð, London og Los Angeles með mörgum af þekktustu upptökustjórum heims.September 2011: Fyrsta smáskífa plötunnar var gefin út. Hún bar nafnið What Makes You Beautiful og skaust í fyrsta sætið á breska vinsældalistanum.Febrúar 2012: What Makes You Beautiful var gefin út í Bandaríkjunum en þá höfðu strákarnir nýlega skrifað undir samning við Columbia Records. Smáskífan seldist í fjórum milljónum eintaka þar í landi og komst á 28. sæti vinsældalistans.Mars 2012: One Direction gaf út sína fyrstu breiðskífu, Up All Night. Hún fór beint í fyrsta sæti í Bretlandi og varð hljómsveitin því sú fyrsta breska til þess að ná þeim árangri að lenda á toppnum með sína fyrstu plötu.Ágúst 2012: Sveitin kom fram á lokahátíð Ólympíuleikanna í London með pompi og prakt og þeir stimpluðu sig inn á kortið sem alþjóðlegar stjörnur.Desember 2012: Strákarnir spiluðu fyrir Englandsdrottningu auk þess að spila á troðfullum tónleikum í Madison Square Garden í New York.Febrúar 2013: Önnur tónleikaferð strákanna hófst fyrir nýútgefna plötu þeirra, Take Me Home, en það seldist upp á flesta tónleika þeirra í Bretlandi og á Írlandi á nokkrum mínútum. Gagnrýnendur sögðu tónleika sveitarinnar vera frábæra og hrósuðu sérstaklega persónutöfrum þeirra og vönduðum söng.Ágúst 2013: Heimildarmynd var gefin út um tónleikaferð strákanna og náði miklum vinsældum í Bretlandi og Bandaríkjunum og er í dag fjórða vinsælasta tónleikamynd í heimi.Nóvember 2014: Fjórða breiðskífa One Direction var gefin út en hún bar nafnið Four og fór beint í fyrsta sæti breska vinsældalistans. Þeir hófu í kjölfarið tónleikaferðalag um heiminn.Mars 2015: Mörg hjörtu voru kramin þann 25. mars þegar hljómsveitin sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis að Zayn Malik hefði yfirgefið sveitina. Hann sjálfur gaf upp þá ástæðu að hann væri orðinn þreyttur á frægðinni en hann hefur þó verið að vinna í sínu eigin efni eftir viðskilnaðinn við vinsælustu hljómsveit heims.Júlí 2015: One Direction gaf út sína fyrstu smáskífu eftir brottför Zayn og heitir hún Drag Me Down.Ágúst 2015: The Sun birtir grein um að hljómsveitin ætli sér að hætta og allt fer í háaloft. Liam og Niall segja þó að það sé ekkert að óttast og að þeir ætli aðeins að taka árs frí til þess að gera það sem þá langar til. Það er skiljanlegt þar sem þeir hafa unnið mjög náið saman stanslaust undanfarin fimm ár.Hér fyrir neðan má sjá fallegt lag sem minnir á tíma þegar allt lék í lyndi.
Tónlist Tengdar fréttir Sá fyrsti í One Direction til að verða pabbi Louis Tomlinson á von á barni með góðvinkonu sinni Briönu Jungwirth. 15. júlí 2015 11:00 Og þá voru eftir fjórir Ferill strákabanda breytist þegar einn yfirgefur hópinn. 1. apríl 2015 09:00 Malik hættur í One Direction Ætla að halda áfram fjórir. 25. mars 2015 16:48 Drengirnir í One Direction á leiðinni hver í sína áttina Nú fer hver að verða síðastur að sjá One Direction í bili. 24. ágúst 2015 00:04 Perrie Edwards í ástarsorg: Brotnaði niður í miðju lagi Perrie Edwards, fyrrverandi kærasta, Zayn Malik brotnaði niður í miðju lagi þegar hljómsveit hennar Little Mix tók lagið The End í gær. 20. ágúst 2015 15:30 Zayn Malik sagt upp af Simon Cowell Strax búinn að finna sér nýtt plötufyrirtæki. 30. júlí 2015 11:00 Myndband: Harry Styles grét á fyrstu tónleikum One Direction án Zayn Malik Var í sorgarklæðum þegar sveitin kom fram sem fjögurra manna band. 26. mars 2015 11:58 Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Sjá meira
Sá fyrsti í One Direction til að verða pabbi Louis Tomlinson á von á barni með góðvinkonu sinni Briönu Jungwirth. 15. júlí 2015 11:00
Drengirnir í One Direction á leiðinni hver í sína áttina Nú fer hver að verða síðastur að sjá One Direction í bili. 24. ágúst 2015 00:04
Perrie Edwards í ástarsorg: Brotnaði niður í miðju lagi Perrie Edwards, fyrrverandi kærasta, Zayn Malik brotnaði niður í miðju lagi þegar hljómsveit hennar Little Mix tók lagið The End í gær. 20. ágúst 2015 15:30
Zayn Malik sagt upp af Simon Cowell Strax búinn að finna sér nýtt plötufyrirtæki. 30. júlí 2015 11:00
Myndband: Harry Styles grét á fyrstu tónleikum One Direction án Zayn Malik Var í sorgarklæðum þegar sveitin kom fram sem fjögurra manna band. 26. mars 2015 11:58