Glamour

Steldu stílnum: Blár augnskuggi

Ritstjórn skrifar
Hann er án efa umdeildasti augnskuggalitur fyrr og síðar. Margir hugsa til hans með hryllingi og tengja hann við förðunarmistök níundaáratugarins.

Um hann hefur einnig verið skrifuð bók og í henni rökstutt hvers vegna þessi litur ætti að vera ólöglegur í augnskugga. 

Já við erum að tala um bláa augnskuggann. Enn og aftur hefur hann skotið upp kollinum og vill ólmur fá að vera næsta trend.

Til að blár augnskuggi verði flottur þarf að gæta þess að taka í burtu allan umfram augnskugga sem hrynur undir augun. Gættu þess einnig að nota mikinn maskara, en þannig kemur blái liturinn best út.

Khloe Kardashian rokkaði bláan augnskugga um helgina
MAC Atlantic Blue
Ysl Couture Mono Nr 8 Zellige
Make Up Store Hummingbird
Sleek i-divine pallette í Calm Before The Storm. Væntanleg á haustfjord.is
Chanel Les 4 Ombres Nr 244 Tissé Jazz
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.



×