Glamour

Cara Delevingne árinu eldri í dag

Ritstjórn skrifar
Á frumsýningu nýjustu myndar sinnar Paper Towns
Á frumsýningu nýjustu myndar sinnar Paper Towns
Breska ofurfyrirsætan og leikkonan Cara Delevingne fagnar 23 ára afmæli sínu í dag.

Þrátt fyrir ungan aldur á hún að baki glæsilegan feril sem fyrirsæta. Hún hefur gengið tískupallana fyrir Chanel, setið fyrir í auglýsingum fyrir Burberry og YSL en hún hefur nú sett fyrirsætuferilinn á ís, og snúið sér alfarið að leiklistinni. 

Í fyrra var hún á lista yfir hæst launuðustu fyrirsætur heims af People. 

Cara var uppgötvuð 17 ára gömul af stofnanda Storm fyrirsætuskrifstofunnar, Sarah Doukas, en það var hún sem kom ofurfyrirsætunni Kate Moss á kortið á sínum tíma. 

Í tilefni dagsins tók Glamour saman nokkrar skemmtilegar myndir af ferlinum hennar.

Á Cannes hátíðinni 2014
Með Kate Moss
Með Karl Lagerfeld á sýningu Chanel 2014
Með vinkonu sinni Kendall Jenner á Chanel Salzburg sýningunni 2014/15
Á Victorias Secret sýningunni 2013
VIð útgáfu CR Fashionbook í september 2014
Það er alltaf stutt í grínið
Cara gengur pallana fyrir Saint Laurent 2014
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.



×