Glamour

Beyoncé prýðir forsíðu september Vogue

Ritstjórn skrifar
Nú hefur forsíða september tölublaðs bandaríska Vogue lekið, og hana prýðir engin önnur en Beyoncé, en þetta er í þriðja sinn sem hún prýðir forsíðu blaðisins.

Þetta er einnig í fyrsta sinn sem þeldökk kona prýðir forsíðu septemberblaðs Vogue.

Myndirnar tók Mario Testino. 

Septemberblaðið er stærsta blað ársins og þess er alltaf beðið með mikilli eftirvæntingu. Ritstjóri blaðsins, Anna Wintour, er greinilega hrifin af því að hafa poppstjörnur á forsíðunni, frekar en fyrirsætu og er líklegt að það hafi eitthvað með sölutölur að gera.

Nú er bara að bíða eftir því að blaðið komi í verslanir. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.



×