Pedro til Chelsea en ekki til Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2015 11:04 Pedro tryggði Barcelona Ofurbikar UEFA á dögunum. Vísir/Getty
Enskir og spænskir fjölmiðlar hafa skrifað um það í morgun að spænski framherjinn Pedro sé ekki lengur á leiðinni til Manchester United heldur til Chelsea. Pedro á að fljúga til London í dag til að gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir hjá Chelsea. Pedro hefur verið orðaður við Manchester United í langan tíma en spænska blaðið Marca hefur heimildir fyrir því að Chelsea og Barcelona hafi samið um kaupverð í gærkvöldi. Chelsea mun borga Barcelona 28 milljónir evra fyrir leikmanninn auk möguleika á tveimur milljónum evra til viðbótar í bónusgreiðslur. Samkvæmt heimildum fjölmiðla í báðum löndum bauð Manchester 25 milljónir evra í Pedro auk fimm milljóna í bónusgreiðslur. Annað spænskt blað, AS, segir að Manchester United og Barcelona hafi ekki náð saman um kaupverðið, hvorki um heildarupphæðina eða með hvaða hætti enska liðið ætlaði að greiða fyrir leikmanninn. BBC hefur síðan fengið það staðfest að Manchester United hafi ekki lengur áhuga á því að kaupa Pedro. Pedro Rodríguez er 28 ára gamall spænsku landsliðsmaður sem hefur spilað með Barcelona frá árinu 2008. Hann hefur skorað meira en tíu mörk í öllum keppnum undanfarin sex tímabil og er samtals með 99 mörk í 321 leikjum fyrir Barcelona.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira