Glamour

Er augabrúna„bling“ næsta trendið?

Ritstjórn skrifar
Lady Gaga
Lady Gaga
Söngkonan Lady Gaga hefur lengi verið þekkt fyrir að fara sínar eigin leiðir, hvort sem það er í klæðaburði eða sviðsframkomu. Svo hefur líklega enginn gleymt því þegar hún mætti í eggi á Grammy verðlaunin 2011.

Það nýjasta hjá Gaga er hinsvegar augabrúnaskart. Á Instagram síðu sinni hefur hún verið iðin við að birta myndir af sér með misskreyttum augabrúnum. 

Förðunarmeistarinn hennar Sarah Tanno hefur svo sannarlega fengið útrás fyrir sköpunargleðina í samráði við Gaga, en á myndunum má meðal annars sjá augabrúnir með steinum og augabrúnir með hringjum líkt og sást á pöllunum hjá Rodarte fyrir sumarið 2015.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar skemmtilegar útfærslur af augabrúnum Lady Gaga.



 
A photo posted by @ladygaga on Jul 27, 2015 at 10:26pm PDT

 
#jazzpunk

A photo posted by @ladygaga on Jul 27, 2015 at 10:20pm PDT

 
Call me by my other name

A photo posted by @ladygaga on Jul 25, 2015 at 8:09pm PDT

 
A photo posted by @ladygaga on Jul 11, 2015 at 11:15am PDT



×